Blóðugur Mbappé fékk ekkert fyrir sinn snúð Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. apríl 2026 21:54 Mbappé fékk olnboga í andlitið. Angel Martinez/Getty Images Real Madrid gerði 1-1 jafntefli við Girona í 31. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar og spænska stórliðið hefur nú leikið þrjá leiki í röð án sigurs. Kylian Mbappé fékk olnbogaskot í andlitið en enga vítaspyrnu.
Spænski miðillinn Marca gengur svo langt að lýsa toppbaráttunni lokið en Real Madrid er vissulega bara sex stigum á eftir Barcelona, þó Börsungar eigi leik til góða og séu í mun betri stöðu þegar stutt er eftir af tímabilinu. Í umfjöllun Marca um leikinn eru stóru orðin ekki spöruð. Real Madrid er sagt hafa verið algjörlega andlaust fyrir utan gott langskot hjá Federico Valverde á 51. mínútu sem skilaði marki. Thomas Lemar jafnaði leikinn skömmu síðar, á 62. mínútu, og Girona var jafnvel líklegri til að vinna leikinn undir lokin. Mbappé blóðugur eftir olnbogaskot Real Madrid var hins vegar vonsvikið að fá ekki vítaspyrnu þegar Kylian Mbappé fékk olnbogaskot frá varnarmanni. Mbappé lá blóðugur eftir olnbogaskotið en fékk ekkert fyrir sinn snúð. 🤯 Le visage de Mbappé après l’action litigieuse en fin de match dans la surface de Girona. pic.twitter.com/EbYiQmb5iJ— Le Journal du Real (@lejournaldureal) April 10, 2026 Lokaniðurstaðan varð 1-1 jafntefli. Real Madrid er því með 70 stig eftir 31 leik en Barcelona er með 76 stig eftir 30 leiki. Eftir leik létu stuðningsmenn óánægju sína í ljós og bauluðu Madrídinga af velli. Ef satt reynist hjá Marca og titilbaráttan á Spáni er bara búin þá er Meistaradeildin eini möguleiki Real Madrid á titli í ár. Þar er liðið hins vegar 2-1 undir gegn Bayern og þarf að snúa stöðunni á útivelli í seinni leiknum á miðvikudag.
Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira