„Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2026 09:03 Svali Björgvinsson gat ekki varist brosi þegar hann rifjaði lýsingu sína á frægri flautukörfu Kára Jónssonar upp. sýn sport Mögnuð sigurkarfa Kára Jónssonar fyrir Hauka gegn Keflavík í úrslitakeppninni í körfubolta karla 2018 er rifjuð upp í sjötta þætti Augnablikanna.
Það er skemmtilega vel við hæfi að þátturinn komi út núna, eftir aðra ótrúlega sigurkörfu Kára gegn Keflavík í fyrrakvöld, þá í búningi Vals. Kári var hetja Hauka í öðrum leiknum gegn Keflavík í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar fyrir átta árum. Fyrst minnkaði hann muninn í þrjú stig með því að setja niður þrjú vítaskot. Keflavík fékk boltann í kjölfarið en tapaði honum eftir leikhlé. Paul Anthony Jones bjargaði því að boltinn færi út af og hann endaði hjá Kára sem skaut honum yfir allan völlinn og ofan í körfuna. Haukar unnu leikinn, 82-85, og komust í 2-0 í einvíginu. Karfan sjálf er fræg en tilþrif Guðjóns Guðmundssonar og Svala Björgvinssonar, sem lýstu leiknum, voru litlu síðri. Myndband af körfunni, með lýsingu þeirra félaga, fór sem eldur um sinu um samfélagsmiðla og birtist í erlendum fréttamiðlum. „Þetta er bara sturlað augnablik og maður getur sett sig í spor Kára og Ívars [Ásgrímssonar, þjálfara Hauka] og leikmanna Hauka að það hefur verið ansi tilfinningum hlaðið,“ sagði Svali í sjötta þætti Augnablikanna sem nefnist „Skotið sem ómaði um netheima.“ „Stundum gerist það, eins og í þessu tilfelli, að dómgreind og einhvers konar mörk yfirgefa mig. Ég gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér. Ég man að ég fór að hugsa: Hvað er að þér? Þú ert rúmlega fimmtugur, þriggja barna faðir og í vinnu þar sem er mikilvægt að allavega sumir taki þig alvarlega og svo gerist þetta. Þú ferð á þennan stað sem er að einhverju marki gaman.“ Klippa: Augnablikin - Skotið sem ómaði um netheima Kári segir erfitt að lýsa líðan sinni eftir að hann hitti úr skotinu. „Maður fer í eitthvað mók. Það er einhver sigurtilfinning sem var svakaleg. Strákarnir komu allir á sprettinum á mann og maður fagnaði með þeim um leið. Svo kemur smá efi hvort ég hafi ekki pottþétt náð að losa boltann áður en tíminn kláraðist. Það var óþörf bið þar sem maður var smá stressaður,“ sagði Kári. Haukar unnu einvígið gegn Keflavík, 3-2, en féllu svo úr leik í undanúrslitunum gegn KR, 3-1. Brot úr „Skotinu sem ómaði um netheima“, sjötta þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þáttinn í heild sinni má nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.
Bónus-deild karla Haukar Augnablikin Tengdar fréttir Draumark Atla gegn Motherwell: „Ég man ekkert hvað kom út úr mér“ Eftirminnilegt sigurmark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna gegn Motherwell sumarið 2014 er til umfjöllunar í fimmta þætti Augnablikanna. 12. apríl 2026 09:00 Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona. 6. apríl 2026 09:03 Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin. 5. apríl 2026 08:00 Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00 Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02 Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02 Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Sjá meira
Draumark Atla gegn Motherwell: „Ég man ekkert hvað kom út úr mér“ Eftirminnilegt sigurmark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna gegn Motherwell sumarið 2014 er til umfjöllunar í fimmta þætti Augnablikanna. 12. apríl 2026 09:00
Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona. 6. apríl 2026 09:03
Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin. 5. apríl 2026 08:00
Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00
Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02
Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02