Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Freyja Þórisdóttir skrifar 11. apríl 2026 13:30 Það var standandi partí þegar þungarokksaðdáendur flykktust í Bíóhöllina á Akranesi í gær. Blik Studio Black Sabbath rokkmessa hófst á Akranesi í gær, föstudaginn 10. apríl, þar sem Jenni í Brainpolice, Franz úr Ensími og Dr. Spock, Hallur úr HAM og Brimbrot og Flosi úr HAM stigu á svið. Þá stigu einnig á stokk sveitirnar Bastarður og Múr. Í kvöld verður dagskráin með léttara móti en þá koma fram Hjálmar, Spacestation og Oyama.
Skagarokk var fyrst haldið í Bíóhöllinni á Akranesi árið 1989 og svo aftur 1990. Þar komu mestmegnis fram hljómsveitir frá Akranesi en tónlistarlífið á Akranesi þá var mjög blómlegt. Síðan eru liðin mörg ár og komið að fyrsta Skagarokkinu í 32 ár og nú er það ekki eitt kvöld heldur tvö, „Festival í anda Skagarokks 92,“ segir útvarpsmaðurinn og tónlistargúrúið Ólafur Páll Gunnarsson. Tónlistarmenn og hljómsveitir á borð Jethro Tull, Jet Black Joe og Black Sabbath hafa spilað á Skagarokk en Bubbi Morthens var meðal þeirra sem komu fram í Bíóhöllinni árið 1994. Hann segir ennþá vera til miða á tónleika kvöldsins og að bandið Hjálmar muni loka hátíðinni með glæsilegum tónleikum og bætir við að „síðustu tónleikar Hjálma á Akranesi hafi einmitt verið í smekkfullri Bíóhöllinni sumarið 2019 og að margir hafi beðið eftir að þeir myndu koma aftur“. Hér fyrir neðan er sannkölluð myndaveisla frá gærkvöldinu. Þetta glæsilega hljóðfæri kallast á ensku Keytar en líkt og glöggir átta sig á er orðið samsett af ensku orðunum „guitar“ og „key“. Hljómsveitirnar sem fram komu í gær eru skipaðar hetjum úr þekktum íslenskum þungarokkshljómsveitum. Meðal þeirra voru trommararnir Ari Steinarsson og Hallur Ingólfsson.Blik Studio Við íslendingar eigum okkar Black Sabbath í Black Sabbath rokkmessubandinu sem er skipað hetjum úr íslensku rokksenunni: Jenni (Brainpolice), Franz (Ensími, Dr. Spock), Hallur (HAM, Brimbrot, 13) og Flosi (HAM).Blik Studio Siggi Sverris sem hafði verið með þungarokksþáttinn Bárujárn á Rás 2 og var ritstjóri Skagablaðsins var svo maðurinn á bakvið Skagarokk þegar það var stærst.Blik Studio Almennt er talið að hópsvif, á ensku crowd surfing, hafi fyrst átt sér stað þegar tónlistarmaðurinn Iggy Pop kom fram á Cincinnati Summer Pop Festival í júní 1970. Þar stökk hann út í áhorfendaskarann og var borinn á höndum áhorfendanna.Blik Studio Ófá gítarsóló ómuðu um sal Bíóhallarinnrar á Akranesi í gær, áhorfendum til mikillar gleði. Blik Studio
Akranes Tónleikar á Íslandi Tónlist Samkvæmislífið Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Hinsegin ást í loftinu Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira