Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson skrifar 11. apríl 2026 18:00 Prófessor í íslenskri málfræði segir “íslensk málfræði felst í því að vera á verði gagnvart því sem sjórnvöld og önnur valdamikil öfl misbeiti tungumálinu í blekkingarskyni”. Mörg dæmi eru um slíka misbeitingu. Sem dæmi má nefna enska orðið accessionnegotiations sem á íslensku þýðir aðildarviðræður. Andstæðingar ESB aðildar vilja hins vegar þýða þetta sem aðlögunarviðræður sem er afbökun og afvegaleiðing. Skoðum málið nánar Breyttur veruleiki eftir hrun Bankahrunið árið 2008 markaði djúp spor í íslensku samfélagi og breytti forsendum efnahags- og utanríkismála. Á skömmum tíma varð Ísland tákn fjármálaóstöðugleika og gripið var til neyðarlaga við fordæmalausar aðstæður. Síðan þá hefur heimurinn breyst verulega. Stríð, aukin spenna milli stórvelda og veikara öryggisumhverfi í Evrópu hafa gert alþjóðlega samvinnu mikilvægari en áður. Evrópusambandið hefur jafnframt þróast og aðlagað sig að þessum nýja veruleika. Þrátt fyrir þetta byggja sumir enn málflutning sinn á forsendum sem tilheyra öðrum tíma. Valdar tilvitnanir – valin þögn Dæmi um þetta má finna í síendurteknum fréttum Viðskiptablaðsins, Morgunblaðsins og ýmsum pistlaskrifum. Þar er ítrekað vísað í 15–17 ára gamlar tilvitnanir í Olli Rehn og Stefan Füle, frá tímum þegar Ísland var að glíma við afleiðingar bankahrunsins. Slík notkun heimilda er ekki aðeins veik röksemdafærsla, heldur getur hún orðið villandi þegar hún er sett fram án samhengi eða uppfærðrar myndar af stöðunni í dag. Svipuð nálgun birtist hjá Morgunblaðinu, sem nýlega fjallaði um ummæli Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um að íslensk stjórnvöld hefðu afturkallað umsókn að Evrópusambandinu. Guðlaugur Þór Þórðarsson alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra segir í viðtali í Morgunblaðinu “Ríkisstjórnin er að blekkja almenning” þegar hann ýjar að því að umsókn um aðilarviðræður sem send var inn á sínum tíma sé ekki í gildi. Hér fer ekkert á milli mála að Guðlaugur Þór er einfaldega að fara með ósannindi eða í það minnsta að afvegaleiða umræðuna. Þetta stenst hins vegar ekki skoðun þegar að er gáð. Í tveimur skýrslum sem unnar voru að frumkvæði Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra – ”Gengið til góðs” (apríl 2018) og ”Mýrarljós í Evrópusamstarfi ”(september 2018) – kemur skýrt fram að aðeins var gert hlé á viðræðum árið 2013. Í tilkynningu þáverandi utanríkisráðherraí júní 2013 til stækkunarstjóra ESB segir að gert yrði hlé (e. “put a halt to”) og gerði forsætisráðherra slíkt hið sama gagnvart forseta framkvæmdastjórnar og forseta ráðherraráðsins í júlí sama ár Þetta er einnig staðfest í minnisblaði til ríkisstjórnar 27. ágúst 2013, þar sem sérstaklega er tekið fram að ákvörðunin „feli ekki í sér slit á aðildarviðræðum“. Á bls 22-23 í skýrslu Mýrarljós í Evrópusamstarfi segir einfaldlega “Aðildarviðræðum var ekki formlega slitið” Um þetta mál var skrifað nokkuð ítarleg frétt í Morgunblaðinu 18 maí 2019. Hvað sagði Uffe Elleman-Jensen? Oft vísa þessir sömu aðilar í viðtal við Uffe Ellemann-Jensen frá 2017 undir fyrirsögninni: „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ En þegar viðtalið er skoðað í heild kemur allt önnur mynd í ljós Hann varar við afleiðingum Brexit og bendir á raunverulegan kostnað þess. Hann leggur áherslu á mikilvægi evrópskrar samvinnu á tímum aukinnar ógnar og gagnrýnir uppgang þjóðernishyggju. Að auki undirstrikar Uffe að Evrópusambandið sé sveigjanlegt og þróist á mismunandi hraða. Og ekki síst: hann segir skýrt að sambandið sé ekki lokaður pakki. „Pakkinn“ – mýta eða staðreynd? Setningin „þið vitið hvað er í pakkanum“ hefur verið rifin úr samhengi og endurtekin eins og slagorð. Í sama viðtali útskýrir Uffe Ellemann-Jensen hins vegar að aðild að Evrópusambandinu byggist á samningum þar sem tekið er tillit til hvers ríkis. Það er grundvallaratriði sem gildir enn í dag. Þetta samræmist einnig eldri greiningum. Í skýrslu sem Björn Bjarnarson skilaði árið 2007 kemur fram að ríki hafa ítrekað fengið undanþágur og sérlausnir í aðildarsamningum. Slíkar lausnir hafa fullt lagalegt gildi, þar sem þær eru hluti af aðildarsamningi sem jafnast á við stofnsáttmála sambandsins segir í þeirri skýrslu. Einnig er hægt að vitna í nýlegra yfirlýsingu Mörtu Kos, stækkunarstjóra Evrópusambandsins þar sem hún segir “Samningar um aðild að Evrópusambandinu eru sértækir fyrir hvert og eitt ríki, og við tökum mið af þeim raunveruleika sem umsóknarrí búa við” Að halda öðru fram stenst því ekki skoðun. Mynstur afvegaleiðingar Það sem blasir við er skýrt mynstur: • Gamlar tilvitnanir eru dregnar fram• Samhengi er þrengt eða fjarlægt• Nýjar upplýsingar eru hunsaðar Þetta er ekki tilviljun heldur ákveðin framsetning. Afleiðingin er skökk mynd af raunveruleikanum sem dregur úr trausti og grefur undan málefnalegri umræðu. Lokaorð - Umræða sem stenst kröfur Umræða um Evrópusambandið á Íslandi á skilið betra. Hún þarf að byggjast á núverandi veruleika, heildstæðum heimildum og heiðarlegri framsetningu. Þegar umræðan er reist á úreltum tilvitnunum og hálfsögðum sannleika verður hún ekki upplýsandi heldur villandi. Slík umræða þjónar hvorki almenningi né lýðræðinu. Látum umræðuna – og að lokum þjóðina – ráða. Höfundur er fyrrverandi framkvæmdatjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar