Úrslitaleikur um EM-sæti: „Á ekki von á því að það komi fyrir aftur“ Sindri Sverrisson skrifar 12. apríl 2026 07:00 Arnar Pétursson ætlar sér að sjálfsögðu sigur í dag og með Ísland á fjórða stórmótið í röð. vísir/Anton Ísland mætir Portúgal á Ásvöllum klukkan 16 í dag í hreinum úrslitaleik um það að komast á Evrópumót kvenna í handbolta í desember. Arnar Pétursson segir búið að rýna í það sem miður fór í Færeyjum og nú verði allt lagt í sölurnar.
Ísland tapaði öðru sinni gegn Færeyjum í undankeppninni á miðvikudaginn en vegna sigurs Svartfjallalands gegn Portúgal degi síðar á Ísland enn von um EM-sæti. Hún veltur núna einfaldlega á því að liðið vinni Portúgal í dag, í lokaumferðinni, og markmið Arnars er skýrt: „Það er að spila þennan leik þannig að við fáum allt út úr okkar leik, hámörkum alla þætti leiksins. Fókusum á núið og fáum góða frammistöðu. Þá erum við á góðri leið og líklegri til að ná okkar markmiðum,“ sagði Arnar við Val Pál Eiríksson en viðtalið má sjá hér að neðan. Klippa: Arnar fyrir úrslitaleikinn við Portúgal Arnar segir að tapið gegn Færeyjum svíði og ekki síst það að framlag leikmanna, til að mynda hlaup aftur í vörn, hafi ekki verið nægilega gott: „Það gerir það. Þetta var í fyrsta sinn í mjög langan tíma, alla vega síðan ég tók við, þar sem við klikkuðum á þeim þætti leiksins. Sem er náttúrulega ekki gott. Við erum svo sem búin að skoða það saman og ég á ekki von á því að það komi fyrir aftur,“ sagði Arnar. En við hverju má búast gegn Portúgal? Arnar segir mótherjana leita mikið inn á línuna og hafa ýmsar lausnir í varnarleik sínum: „Portúgalska liðið er í uppbyggingu, mikil framför þarna. Þetta eru stelpur sem börðust oft við okkar 2004-lið og það eru nú ansi margar komnar úr því liði í okkar A-landslið, eins og hjá Portúgal. Þær eru með eina mjög öfluga skyttu sem við þurfum að hafa góðar gætur á,“ sagði Arnar en viðtalið má sjá hér að ofan.
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026 Tengdar fréttir Margt sem þarf að laga Elín Klara Þorkelsdóttir segir sannarlega margt mega laga í leik íslenska kvennalandsliðsins eftir tap fyrir Færeyjum ytra í vikunni. Liðið á fyrir höndum úrslitaleik um EM-sæti við Portúgal að Ásvöllum á morgun. 11. apríl 2026 16:47 Mest lesið „Var líklegur í að hoppa í ána og segja að þetta sé búið“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira
Margt sem þarf að laga Elín Klara Þorkelsdóttir segir sannarlega margt mega laga í leik íslenska kvennalandsliðsins eftir tap fyrir Færeyjum ytra í vikunni. Liðið á fyrir höndum úrslitaleik um EM-sæti við Portúgal að Ásvöllum á morgun. 11. apríl 2026 16:47