Handbolti

Ómar með fjór­tán og Gísli skoraði alltaf

Sindri Sverrisson skrifar
Ómar Ingi Magnússon fór hamförum í dag.
Ómar Ingi Magnússon fór hamförum í dag. Getty/Igor Kralj

Ómar Ingi Magnússon skoraði heil fjórtán mörk, úr aðeins sextán skotum, þegar Magdeburg styrkti enn stöðu sína á toppi þýsku 1. deildarinnar í handbolta í dag með 35-31 sigri gegn Erlangen.

Ómar skoraði átta af mörkunum af vítalínunni og var kominn með tíu mörk áður en fjörutíu mínútur voru liðnar af leiknum, þar af sjö úr vítum. Hann endaði eins og fyrr segir með fjórtán mörk og gaf auk þess þrjár stoðsendingar.

Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki síðri með átta mörk úr jafnmörgum tilraunum, þar af ekkert af vítalínunni, og þrjár stoðsendingar. Elvar Örn Jónsson skoraði svo eitt mark og lét til sín taka í vörninni. Andri Már Rúnarsson var með fjögur mörk fyrir Erlangen.

Magdeburg er nú með 52 stig á toppnum, eftir að hafa aðeins tapað einum af 28 leikjum sínum, og er sjö stigum á undan Flensburg sem kemur næst nú þegar aðeins sex umferðir eru eftir.

Lærisveinar Arnórs nældu í stig

Lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer gerðu vel í að krækja í stig gegn Stuttgart á heimavelli, með 25-25 jafntefli. Staðan var 13-10 gestunum í vil í hálfleik og þeir náðu mest fimm marka forskoti í seinni hálfleiknum en strákarnir hans Arnórs átu það forskot upp. Bergischer er því með 15 stig í 15. sæti, fjórum stigum frá fallsæti.

Einar Þorsteinn Ólafsson, varnarmaðurinn öflugi, var svo í liði Hamburg sem tapaði á heimavelli gegn stórliði Kiel, 34-27, eftir að hafa verið fimm mörkum undir í hálfleik, 19-14. Einar var ekki á meðal markaskorara í leiknum en fékk eina brottvísun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×