„Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 12. apríl 2026 22:15 Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram. Vísir/Guðmundur „Þetta var skrítinn leikur, rússíbanareið,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram eftir 3-3 jafntefli gegn ÍA á Lambhagavellinum.
Eftir rólegan fyrri hálfleik, þá sprakk leikurinn út í þeim seinni. Fram komst snemma yfir í síðari hálfleik en eftir klukkutíma leik var staðan orðin 1-3 fyrir gestunum af Skaganum. Framara náðu hins vegar að jafna leikinn og skoraði fyrirliðinn, Kennie Chopart, jöfnunarmarkið í uppbótatíma með skalla eftir horn. „Jafn fyrri hálfleikur svona að mestu leyti, ekki mikill munur á liðunum og lítið um færi. Seinni hálfleikurinn, þá opnaðist þetta allt saman og við skorum snemma en svo fáum við þrjú mörk á okkur á tíu mínútum sem ég er virkilega ósáttur við. Við vorum í raun heppnir að fá ekki fjórða markið á okkur og skíttapa hérna, en við sýndum karakter og börðumst fyrir þessu stigi.“ Slysin gerast Aðspurður hvað gerðist hjá hans leikmönnum þegar ÍA skoraði þrjú mörk með skömmu millibili, þá hafði Rúnar þetta að segja. „Það vantaði bara einbeitingu. Öll mörk getur maður horft á aftur og sagt af hverju gerðir þú ekki þetta og af hverju gerðir þú ekki hitt. Við munum finna það og skoða það, er þetta einbeitingarleysi eða værukærð eftir að hafa komist yfir. Maður veit aldrei hvað er að gerast í hausnum á mönnum. Slysin gerast, en síðan ertu að spila við lið sem að getur gert góða hluti.“ „Við þurfum að laga ýmislegt. Kannski færslan á varnarlínunni. Með fimm manna varnarlínu áttu ekki að geta fengið boltann rúllandi í gegnum vörnina þína.“ Mikill hiti var í leiknum á lokaandartökum hans. Johannes Vall, leikmaður ÍA, fór í glæfralega tæklingu beint fyrir framan varamannabekkina, en Vall var á gulu spjaldi þegar þetta gerðist. Örskömmu seinna féll Jakob Byström, leikmaður Fram, inn í teig eftir að Böðvar Böðvarsson hafði lagt báðar hendur á bakið á honum. Sigurður Hjörtur, dómari leiksins, mat sem svo að Byström væri að sýna leikræna tilburði og fékk hann því sitt seinna gula spjald eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Rúnar var með sterkar skoðanir á báðum þessum atvikum. „Það að fara í tæklingar og eins og var í gamla daga að taka boltann og manninn, en Vall var á gulu og fer í reckless-challenge að mínu mati. Hann vissulega tekur boltann en straujar manninn líka. Þú þarft ekki alltaf að sparka í manninn, ef að leikmaðurinn hoppar ekki úr þessu þá er hann fótbrotinn. Hvort sem það er rangt eða rétt þá er þetta aldrei gult spjald á Jakob fyrir leikaraskap inn í vítateig. Böðvar setur aðra hendina á hann og svo hina og hrindir honum niður. Að mínu viti er þetta frekar vítaspyrna heldur en að gefa honum gult spjald og reka hann út af fyrir seinna gula spjaldið. Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu sko. Að mínu viti er þetta bara klár vítaspyrna.“ Rúnar segir fátt annað en eitt stig sem hann getur tekið út úr þessum leik. „Eitt stig, það er það eina sem ég er sáttur við. Allt of mikið af gloppum í þessu hjá okkur, allt of mikið af lélegum ákvörðunartökum. Karakterinn í liðinu tek ég áfram og að gefast ekki upp og halda áfram og berjast fyrir þessum mörkum. Ég er ánægður með varamennina mína, þeir breyttu leiknum. Eina sem er jákvætt er stigið, ekkert annað.“
Besta deild karla Fram ÍA Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Formúla 1 Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Fótbolti Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Haukar fá risavaxinn liðsauka Körfubolti Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira