Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Jakob Bjarnar skrifar 13. apríl 2026 14:51 Pétur Gautur segir lögregluna hafa lýst yfir þeirri skoðun að þeim þyki menn alltof tregir til að verja nafn sitt gagnvart ásökunum af þessu tagi. Pétur Gautur segir þetta leiðindamál og hann sé í uppnámi en hann vill verja nafn sitt. vísir/ívar Myndlistarmaðurinn Pétur Gautur hefur nú lagt fram kæru á hendur nafnlausri konu sem hann vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann var, upp úr þurru, sakaður um barnaníð. Þetta gerðist á Facebook-síðunni „Áfram Stelpur!“ „
Það tók mig þrjár vikur að komast í skýrslutöku en það hafðist og nú er ég búinn að leggja fram kæru,“ segir Pétur Gautur í samtali við Vísi. Pétur Gautur segist í uppnámi vegna þessa máls sem hefur tekið verulega á en fjölmargir hafi haft samband og lýst yfir stuðningi við hann. „Þetta er leiðinlegt mál. En ég var að koma frá lögreglunni bara rétt í þessu. Ég ætlaði að kæra þær báðar, það er konuna sem stjórnar þessari síðu og svo þennan nafnlausa einstakling. En löggan vildi byrja á því að athuga hvort sú sem er með síðuna verði ekki samvinnufús og gefi upp nafn þess sem lét að því liggja að ég væri barnaperri.“ Af hverju hafði konan ekki samband við lögregluna? Pétur Gautur furðar sig á því hvernig konan bar sig að. Hún hafi greint frá því að þrisvar hafi hún farið fram hjá vinnustofu hans til að athuga hvort allt væri í lagi? „Af hverju grípur hún ekki inn í eða hefur samband við lögregluna? Málin verða varla alvarlegri. Nei, þá er frekar farið heim, ég googlaður, það er myndbirting frá því að ég var að setja upp sýningu fyrir tíu árum í Gallerí Fold, ég gerður grunsamlegur og sagt að ég sé barnaperri.“ Lögmaður Péturs Gauts hefur sagt að ásakanir um annað eins og þetta séu grafalvarlegt mál, brot gegn barni sé einn stærsti glæpur sem hægt sé að fremja. Alltof sjaldgæft að menn bregðist við málum sem þessum „En þetta er sem sagt staðan í dag. Kæran er farin út og nú er eins gott að hún sem stýrir síðunni verði samvinnufús,“ segir Pétur Gautur sem telur hana vera að stíga inn á verksvið lögreglunnar með því að halda úti téðri síðu. „Hún gerir ekkert annað en að þykjast vera einhver lögga! Það hafði við mig samband maður sem sagðist hafa lent í klónum á henni. Hann leitaði til lögreglu en þá var hún búin að breyta um nafn á síðunni og lögreglan var eitthvað í vandræðum með málið.“ Hér er gefið í skyn, svo ekki sé meira sagt, að Pétur Gautur sé verulega vafasamur náungi sem vert sé að gefa gætur. Dýnan er hins vegar nokkuð sem Pétur hefur fyrir hund sinn. Pétur Gautur segir ásakanirnar vitaskuld algjörlega úr lausu lofti gripnar. Hann hafi verið spurður um vitni en Pétur sagði engin vitni hafa komið enda hefði ekkert gerst; barnabarnið hans hefði einfaldlega komið og teiknað. Hann búi í næsta húsi og þetta hafi hann gert frá því hann lærði að labba. „Lögreglan sagði að það væri alltof sjaldgæft að menn brygðust við málum af þessu tagi og gengju í að hreinsa nafn sitt. En þetta kostar alls konar átök og það að koma fram undir nafni. Af því að ég er nú frekar þekktur, allavega í myndlistargeiranum, þá tel ég nokkurs um vert að hreinsa nafn mitt.“
Ofbeldi gegn börnum Samfélagsmiðlar Myndlist Gæludýr Lögreglumál Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Sjá meira