Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. apríl 2026 09:00 Gout Gout gæti orðið hraðasti maður sögunnar ef áfram heldur. Cameron Spencer/Getty Images Átján ára gamli Ástralinn Gout Gout heldur áfram að heilla á hlaupum og stefna metum Usain Bolt í hættu. Um helgina hljóp hann á betri tíma en Bolt gerði á hans aldri en sumir vilja meina að tíminn hefði alls ekki átt að standa.
Gout Gout kom í mark á 19.67 sekúndum í 200 metra hlaupi á heimavelli í Ástralíu um helgina. Sá tími hefði dugað til að vinna gullverðlaun í greininni á Ólympíuleikunum í París 2024 og er heimsmet í undir 20 ára aldursflokki. Usain Bolt átti fyrra aldursflokkametið en Gout Gout bætti það um 26 sekúndubrot. Heimsmet Bolt í greininni, upp á 19.19 sekúndur, stendur þó enn. "I guess you could say a big weight off my shoulder knowing that I ran it legally and I have the speed in my body to run times like that."💚💛 Gout Gout has even surprised himself, on his way to smashing his own national 200-metre record.🏃🇦🇺Read more: https://t.co/kT4Aktw6Og pic.twitter.com/7ZLjDIX8LK— ABC SPORT (@abcsport) April 12, 2026 Þó tíminn hafi verið staðfestur af mótshöldurum hafa margir dregið þetta afrek í efa. Gout Gout hljóp nefnilega í meðvindi upp á 1.7 metra á sekúndu. Sem er rétt undir löglegum mörkum, 2.0 metrum á sekúndu. Þá þykir það ótrúlegt að sjö af átta keppendum hafi náð persónulegum metum í þessu hlaupi. „Ég velti þessum tíma fyrir mér… Allir í efstu sjö sætunum bættu persónuleg met og allir í efstu fimm sætunum bættu sig um meira en tuttugu sekúndubrot,“ skrifar hlaupasérfræðingurinn Jonathan Gault á X. Have to wonder a bit about the times in the Australian 200m final. The top seven all ran personal bests -- and the top 5 all PR'd by .20 or more. https://t.co/lB2v1Ftgr4 pic.twitter.com/atKP3ebsN4— Jonathan Gault (@jgault13) April 12, 2026 Spretthlauparinn Erin Brown tekur sterkar til orða og segir hreint út að tíminn hefði aldrei átt að standa. „Þetta er augljóslega fals tími. Hann hljóp 20.4 í fyrra hlaupinu. Aidan Murphy varð í öðru sæti og bætti sinn besta tíma frá 20.41 sekúndu niður í 19.88 sekúndur,“ sagði Brown á TikTok. Aðrir hafa þó bent á að sama hvernig aðstæður voru sé þetta merkilegt afrek. „Tíminn er mjög merkilegur, sama þó hann hafi verið settur við frábærar aðstæður. Þeir virðast hafa verið heppnir með vindátt. Vindurinn gæti líka hafa blásið vel inn í beygjuna, þannig að þau fengu hraða þar sem mældist kannski ekki á mælunum,“ sagði Vebjorn Rodal við NRK.
Hlaup Frjálsar íþróttir Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira