Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 14. apríl 2026 11:30 Í viðtali við Sólveigum Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, í Morgunblaðinu 14. apríl um að Evrópusambandið, er því haldið fram að verkafólk sé betur sett í íslensku umhverfi en innan ESB. Það er mikilvægt að taka þá umræðu alvarlega – en skoðum betur og berum saman: Íslenska kerfið stendur áfram Ef Ísland gengi í Evrópusambandið myndi það ekki þýða að íslenskt vinnumarkaðskerfi hyrfi. Kjarasamningar, hlutverk stéttarfélaga og samningsréttur launafólks yrðu áfram mótuð hér á landi, eins og ríki á borð við Danmörk og Svíþjóð gera í dag. Þar er réttur verkafólks jafnvel meiri en á Íslandi. ESB ákveður ekki laun. Það setur lágmarksreglur um réttindi og vinnuvernd, en ríki geta gengið lengra. Ísland á áfram að setja sínar reglur eins og Norðurlöndin gera í dag. Við erum nú þegar inni í kerfinu Í gegnum EES-samningurinn hefur Ísland þegar tekið upp stóran hluta þess regluverks sem gildir um vinnumarkað í Evrópu. Munurinn er sá að nú höfum við takmörkuð áhrif á mótun þeirra reglna. Spurningin er ekki hvort við fylgjum evrópskum reglum – heldur hvort við viljum hafa áhrif til að bæta þær almennt innan ESB. Hagsmunir verkafólks í breiðara samhengi Staða verkafólks ræðst ekki aðeins af kjarasamningum, heldur einnig af: atvinnuöryggi stöðugleika í efnahagslífi (t.d. vöxtum) aðgengi að störfum Hér geta sterkari tengsl við ESB skipt máli. Aðgangur að stærri vinnumarkaði þýðir að Íslendingar geta leitað sér starfa í öðrum löndum án hindrana. Á sama tíma auðveldar það íslensku atvinnulífi að fá til landsins sérhæft starfsfólk þegar við þurfum á því að halda. Stöðugleiki skiptir verkafólk miklu máli Óstöðugleiki í gjaldmiðli og efnahagsumhverfi bitnar oft harðast á almennu launafólki. Fyrirsjáanlegra rekstrarumhverfi og sterkari tenging við stærri efnahagssvæði getur aukið stöðugleika – sem skilar sér í meira atvinnuöryggi og betri kjörum til lengdar. Raunverulega valið Ísland býr við sterkt vinnumarkaðskerfi og það á að verja. En það er ekki einstakt í Evrópu – Norðurlöndin hafa þróað svipuð kerfi innan ESB. Kjarni málsins er því þessi: Aðild að ESB snýst ekki um að veikja réttindi verkafólks, heldur um að ákveða hvort Ísland vilji hafa áhrif á það umhverfi sem mótar réttindin innan ESB. Niðurstaða Það er mikilvægt að standa vörð um hagsmuni og réttindi verkafólks – launafólks almennt. En það þarf ekki að gera með því að hafna samstarfi. Þvert á móti getur sterkari staða innan Evrópu – með meiri áhrifum, stöðugra efnahagsumhverfi, meiri og opnari tækifærum – verið leið til að bæta kjör og tryggja þessi réttindi enn betur. Umræðan ætti því ekki að snúast um ótta við ESB, heldur um hvernig við nýtum best þau tæki sem standa okkur til boða innan ESB. En byrjum á því að segja já í ágúst við því að við fáum að sjá samninginn. Engin ætti að taka endanlega ákvörðun um samninginn fyrir en kosið verður um hann síðar. Höfundur viðskiptafræðingur og stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar