Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Kjartan Kjartansson skrifar 14. apríl 2026 11:45 Emilie Schytte, þingkona Borgaraflokksins, á fyrsta fundi danska þingsins eftir kosningar í síðustu viku. Hún er klædd í rauðu fyrir miðri mynd. Vísir/EPA Efasemdir um hvort að nýkjörinn þingmaður Borgaraflokksins búi raunverulega í Danmörku hafa sett staðfestingu á úrslitum þingkosninganna þar í uppnám. Atkvæðagreiðsla um málið á að fara fram í danska þinginu í dag en hún átti aðeins að vera formsatriði.
Þingfundurinn þar sem staðfesta átti kosningaúrslitin átti að hefjast klukkan ellefu að íslenskum tíma. Honum var hins vegar frestað eftir að nefnd sem hefur eftirlit með kosningum bað um rannsókn á högum eins af nýju þingmönnunum, að sögn danska ríkisútvarpsins. Ástæðan er umfjöllun fjölmiðilsins Information um búsetu Emilie Schytte, nýkjörins þingmanns Borgaraflokksins. Hún er gift sænskum manni og vakti umfjöllunin vafa um hvort hún væri raunverulega búsett í Danmörku eða Svíþjóð. Danska stjórnarskráin kveður á um að þingmenn verði að vera búsettir í Danmörku. Þingnefndin hefur óskað eftir að innanríkisráðuneytið gefi út yfirlýsingu um stöðu Schytte. Schytte segir fráleitt að hún hafi brotið gegn stjórnarskrá. Hún dvelji vissulega nokkra daga í Svíþjóð í hverjum mánuði en að ásakanirnar eigi ekki við nein rök að styðjast. Peter Juel-Jensen, formaður nefndarinnar og þingmaður Venstre, segist telja að rannsóknin taki fljótt af. Botn verði þó að fást í það hvort allir réttkjörnir þingmenn séu búsettir í landinu. Í versta falli gæti Schytte verið svipt þingsæti sínu. Næsti maður á lista Borgaraflokksins tæki þá sæti hennar. Marlene Harpsøe, fulltrúi Danmerkurdemókrata í nefndinni, sagði danska ríkisútvarpinu, að kosningaúrslitin yrðu staðfest til bráðabirgða. Boðað yrði til þingfundar í hádeginu. Fréttin var uppfærð eftir að fundi þingnefndarinnar sem fer yfir úrslit kosninga lauk.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Svíþjóð Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira