„Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. apríl 2026 15:45 Hinn átján ára Garðar Ingi Sindrason er lykilmaður í liði FH sem freistar þess að slá erkifjendur sína, Hauka, út í undanúrslitum Olís-deildar karla. vísir/sigurjón Markahæsti leikmaður FH í vetur, Garðar Ingi Sindrason, bíður spenntur eftir þriðja leik FH og Hauka í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta. Hann segir leiki þessara liða alltaf einstaka.
FH vann fyrsta leikinn gegn Haukum, 27-21. Staðan var jöfn, 17-17, þegar ellefu mínútur voru eftir en þá gáfu FH-ingar í og sigu fram úr erkifjendum sínum. Haukar svöruðu fyrir sig með fimm marka sigri í öðrum leik liðanna á Ásvöllum, 27-22. Haukar reyndust sterkari undir lokin og jöfnuðu einvígið í 1-1. Liðin mætast í þriðja sinn í kvöld, í Kaplakrika, og ljóst er að sigurvegarinn kemur sér í kjörstöðu til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Þar verður andstæðingurinn Valur. „Þetta leggst bara gríðarlega vel í mig. Mikil tilhlökkun og við erum heldur betur klárir,“ sagði Garðar í samtali við íþróttadeild. Hann skoraði sjö mörk í fyrsta leiknum gegn Haukum en sex í leik tvö. Garðar segir helsta muninn milli leikjanna tveggja vera frammistöðu markvarðanna. „Það var auðvitað markvarslan. Hann [Aron Rafn Eðvarðsson] átti stórleik hjá þeim í leik tvö og hann [Jón Þórarinn Þorsteinsson] átti stórleik hjá okkur í leik eitt. Þetta lá svolítið þar myndi ég segja,“ sagði Garðar. Garðar fær óblíðar móttökur frá varnarmönnum Hauka.vísir/anton FH og Haukar eru svarnir fjendur og grunnt á því góða milli liðanna. Garðar segir ekkert jafnast á við Hafnarfjarðarslagi. „Þetta eru mjög sérstakir leikir og auðvitað skemmtilegustu leikirnir að spila. Það er alltaf mikil harka og mikið af áhorfendum á þessum leikjum. Þetta er svolítið öðruvísi en auðvitað bara geggjað,“ sagði Garðar. En hvað þarf helst að varast hjá Haukum? Það er auðvitað þarna á miðjunni hjá þeim, Freyr. Hann er búinn að vera gríðarlega góður í báðum leikjunum. Svo má Aron í markinu hjá þeim ekki detta í gang,“ svaraði Garðar. Umræddur Freyr er leikstjórnandi Hauka og lykilmaður í þeirra liði þrátt fyrir að vera aðeins sautján ára, fæddur 2008. Garðar er fæddur 2007 en þeir Freyr hafa marga hildina háð, fyrst í yngri flokkunum og nú í meistaraflokki. Freyr Aronsson er prímusmótorinn í sóknarleik Hauka.vísir/ „Jú, einmitt. Ég og Freyr höfum verið að kljást bara síðan í áttunda flokki þannig að það er bara gaman,“ sagði Garðar. Leikurinn í kvöld er sjötti leikur FH og Hauka á þessu tímabili. FH-ingar unnu báða leikina í Olís-deildinni en Haukar unnu leik liðanna í undanúrslitum Powerade-bikarsins. Þau eru svo með sitt hvorn sigurinn í einvíginu í undanúrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn. Leikur FH og Hauka hefst klukkan 19:30 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Olís-deild karla FH Haukar Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport „Ég verð að spila“ Enski boltinn Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Fleiri fréttir „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Sjá meira