Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2026 23:16 Theresa Claesson Andreasson lést eftir baráttu við krabbamein, Radio Haugaland Theresa Claesson Andreasson, fyrrverandi landsliðskona Svía í handbolta, er látin en hún var aðeins 54 ára.
Claesson Andreasson lést úr krabbameini en það staðfestir fjölskylda hennar við dagblaðið Lysekilsposten. Handboltakonan lék 89 landsleiki fyrir Svíþjóð á farsælum ferli. Hún var ein besta handboltakona Svíþjóðar í upphafi 21. aldar, „Þetta er svo djöfullega ósanngjarnt,“ sagði eiginmaður hennar, Henrik Andreasson, við Lysekilsposten. Förra landslagsstjärnan Theresa Claesson Andreasson död – blev 54 år • Makens sorg: ”Går inte att förbereda sig”https://t.co/Rr6OgqwwJW— SportExpressen (@SportExpressen) April 14, 2026 „Ég finn fyrir gríðarlegu tómarúmi en líka stolti yfir því sem við höfum áorkað saman á 35 árum, segir eiginmaðurinn með kökkinn í hálsinum. Fyrir tíu árum greindist Theresa með ágengt brjóstakrabbamein og neyddist til að láta fjarlægja annað brjóstið. „Við héldum að það hefði tekist að ná tökum á því en í lok nóvember 2023 kom brjóstakrabbameinið aftur og þá hafði það sest í beinin. Þá fengum við meira og minna að vita að það væri ólæknandi. Hún átti svo tvö alveg ágæt ár en síðan í desember í fyrra hefur henni hrakað hægt og rólega og á föstudagsmorgun sofnaði hún svefninum langa,“ sagði Henrik við Sportbladet. Hann spilaði sjálfur handbolta í efstu deild með Sävehof og Kroppskultur og spilaði einnig á Spáni og í Danmörku þegar Theresa varð atvinnumaður þar. Á meðan elsti sonurinn Vincent (23 ára) hefur lagt fyrir sig hnefaleika er yngri bróðirinn Arvid (20 ára), einn efnilegasti handboltamaður Svíþjóðar og talinn framtíðarmaður landsliðsins, á línunni. Arvid, sem var lykilmaður þegar Svíþjóð vann Evrópumót átján ára landsliða fyrir einu og hálfu ári, er nú í miðri úrslitakeppni sænsku deildarinnar með Alingsås HK. „Arvid er auðvitað í mjög erfiðri stöðu núna. Hann þurfti að sjálfsögðu að sitja hjá í öðrum og þriðja leik í átta liða úrslitum vegna þessa. En hann ætlar að reyna að spila fjórða leikinn í átta liða úrslitum á morgun, eins og staðan er núna,“ sagði Henrik.
Sænski handboltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira