Handbolti

„Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“

Snorri Steinn Guðjóns­son hefur skrifað undir nýjan samning sem lands­liðsþjálfari Ís­lands til ársins 2032. Að­stoðarþjálfari hans fer sömu leið í samningi sem teygir sig yfir stórar vörður á mikilvægu tímabili fyrir ís­lenska lands­liðið.

Aron Guðmundsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta

Snorri Steinn Guðjóns­son hefur skrifað undir nýjan samning sem lands­liðsþjálfari Ís­lands til ársins 2032. Að­stoðarþjálfari hans fer sömu leið í samningi sem teygir sig yfir stórar vörður á mikilvægu tímabili fyrir ís­lenska lands­liðið.

„Þetta hékk aldrei á bláþræði,“ segir Snorri um viðræðurnar við HSÍ. „Það var aldrei spurning um að ég vildi halda áfram og ég fann fyrir miklum vilja frá HSÍ. Eins og eðli­legt er þegar gerður er langur samningur þá er margt sem þarf að fara yfir. Það var ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta.“

Áhuginn var þó svo sannar­lega til staðar frá lands- og félagsliðum er­lendis frá á bæði Snorra og Arnóri Atla­syni, að­stoðarþjálfara hans, sem lands­liðsþjálfarinn lagði mikla áherslu á að halda

Var það ófrávíkjan­leg krafa af þinni hálfu að Arnór yrði áfram þér við hlið í þessu?

„Ég lagði mikla áherslu á það. Við Arnór erum mjög sam­stíga og ég vissi svo sem líka alveg í hvaða ferli það var. Ég var aldrei mjög ótta­sleginn að missa minn mann. Auðvitað er erfitt að gera ein­hverja körfu á það. Við vorum í þessu saman og það var mikið áherslu­at­riði að hann yrði áfram með mér.

Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason. vísir / vilhelm

Hefur mikla trú á framtíðinni

Snorri er þakk­látur fyrir traustið sem honum er sýnt með svona löngum samningi. Ekki er verið að tjalda til einnar nætur. Samningurinn nær yfir fjölda­mörg stór­mót, þar á meðal tvo ólympíu­leika og heims­meistaramót hér á Ís­landi 2031. Þá er stefnan sett á að styrkja starfið í kringum framtíðar lands­liðs­menn Ís­lands.

„Ég geri mér grein fyrir því að það er mikil ábyrgð sem fylgir þessu. Ef ég tala út frá sjálfum mér þá myndi ég aldrei taka að mér svona verk­efni nema að ég hefði sjálfur mestu trúna á því. Ég hef alveg gríðar­lega mikla trú á liðinu sem ég er með í höndunum í dag. Ég hef mikla trú á framtíð ís­lensks hand­bolta og sé marga unga og efni­lega leik­menn sem eiga framtíðina fyrir sér. Lykil­for­senda í þessu öllu var náttúru­lega að ég hefði trú á þessu og trú á sjálfum mér. Að ég gæti gert þetta verk­efni al­menni­lega.“

Strákarnir okkar á EM í upphafi ársvísir/Vilhelm

Klásúlur er varða félagslið

Bæði HSÍ og Snorri eru með belti og axla­bönd í viðræðunum. Klásúlur til að bregðast við hvers konar aðstæðum sem kunna að koma upp. Til að mynda ef félagslið er á höttunum á eftir Snorra.

„Það er eitt­hvað opið. Þegar að þú gerir svona langan samning held ég að það sé mjög eðli­legt að báðir aðilar vilji hafa ein­hverjar klásúlur. Hvernig þær nákvæm­lega eru held ég að sé bara fínt að sé á milli mín og HSÍ. 

Góðum árangri fylgir áhugi og athygliVísir/Vilhelm

Ég nálgast þetta frekar af ákveðinni auðmýkt. Ég geri mér grein fyrir því að ég er bundinn af því að ná árangri á næsta móti og mótinu eftir það. Koma liðinu á Ólympíu­leikana árið 2028 og allt þar á milli. Hvort ég sé að fara út eða ekki verður bara tíminn að leiða í ljós.“

Er sem sagt ein­hver klásúla er varðar félagslið í samningnum?

„Já það eru ein­hverjar klásúlur um það. En það eru klásúlur á báða bóga. Ég er ekki að velta fyrir mér klásúlunum fyrir mér núna. Núna er ég bara að þjálfa ís­lenska lands­liðið í hand­bolta. Ég væri alveg til í að sinna þessu starfi til ársins 2032 og engu öðru. Það er ekki hollt að hugsa of langt fram í tímann.“

Stórmót á Íslandi kitlar

Þó svo að langur vegur sé fram undan kitlar það Snorra að vera með samning fram yfir HM 2031 þar sem riðill Ís­lands verður spilaður hér á heima­velli í nýrri þjóðar­höll.

„Ég skal alveg viður­kenna það að þegar ég fór fyrst inn í þessar samninga­viðræður þá var ég ekki með þetta endi­lega á bak við eyrað. Að þetta gæti verið staðan. En þegar að þetta fór að vera meira í um­ræðunni þá kitlaði þetta. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það þarf fullt að ganga upp til að þetta verði að veru­leika en ég hefði ekki skrifað undir þennan samning nema að hafa trú á því. Þetta kitlar vissu­lega. Það gerist ekkert oft að þú stýrir liðinu þínu á heima­velli á stór­móti. Það sem kitlar mig samt mest núna er næsta HM. Það er mikið í húfi þar. Ég hugsa að það eigi eftir að fylla tíma minn meira en akkúrat þetta mót svona í nánustu framtíð.“

Stutt í báðar áttir

Takturinn í liðinu hefur verið góður undir stjórn Snorra og náði liðið fjórða sætinu á EM í upp­hafi árs. Stefnan er sett á medalíur en lítið má út af bregða.

Ísland - Króatía Leikur um Bronsið á EM karla í handbolta í Herning Danmörku 2026Vísir/Vilhelm

„Ég held að allir sem koma að þessu liði geri sér samt sem áður grein fyrir því að það er stutt í báðar áttir. Við vorum grát­lega nálægt því að ná í verð­laun. Mér fannst við sýna að við eigum heima í þessum hópi. Það voru samt sem áður þjóðir sem voru ekki þarna sem finnst þær líka eiga heima þarna. Á meðan ég trúi því að við getum bætt okkur og náð lengra þá er ekkert því til fyrir­stöðu að láta sig dreyma alla­vega. Mark­mið innan liðsins verða mjög skýr þegar kemur að næsta móti. Auðvitað erum við, eins og alltaf, bundnir af því að ákveðnir menn séu heilir heilsu, að spila og að allt sé í standi þegar að því kemur. Við erum klár­lega bjartsýnir. Okkur langar í meira.“






×