Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Jakob Bjarnar skrifar 15. apríl 2026 11:42 Heimir Már kynnir framboð Flokks fólksins í Reykjavík. Stefán Pálsson, 3. maður á lista Vinstrisins, skýtur á Heimi og segir hann geta sjálfum sér um kennt að hafa verið skikkaður í síðasta hólfið hjá RÚV. vísir/vilhelm „Við töldum það ekki vera framboðinu til framdráttar að mæta í þennan tiltekna þátt á þessum degi,“ segir Heimir Már Pétursson kosningastjóri Flokks fólksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í samtali við Vísi.
Meira vill hann ekki segja um það, spurður hvers vegna hann teldi það ekki framboðinu til framdráttar. „Þetta er svarið,“ segir Heimir Már og verða menn að geta í eyðurnar, hvers vegna Flokkur fólksins hafi ekki talið þetta vera framboðinu til framdráttar. Morgunblaðið vakti athygli á því í dag að það hafi komið oddvita Flokks fólksins í opna skjöldu þegar stjórnandi þáttarins sagði Guðmund Inga Þóroddsson oddvita hafa afþakkað að mæta í þáttinn. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, verður oddviti Flokks fólksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Það kom honum í opna skjöldu þegar sagt var í Silfrinu á Rúv að hann hefði afþakkað að vera í kosningaþættinum.vísir/vilhelm Silfrið er að keyra þætti fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar nú um stundir og í þætti á mánudagskvöldið voru gestir Ingimar Þór Friðriksson oddviti Góðan daginn-framboðsins, Sigfús Aðalsteinsson fyrir hönd Okkar borgar og Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalistaflokkinn sem sátu fyrir svörum. Guðmundi Inga Þóroddssyni, oddvita Flokks fólksins á framboðslista flokksins í Reykjavík, brá hins vegar í brún þegar kynnt var að hann hefði afboðað þátttöku sína í þættinum því það gerði hann alls ekki. Á Facebook-síðu Stefáns Pálssonar, sem er þriðji maður á lista Vinstrisins, veltir hann þessu fyrir sér og telur sig vita að Heimir Már eigi ekkert alltof góðar minningar tengdar Silfrinu en spyr hvort þetta séu ekki óþarflega róttæk viðbrögð? Stefán segir svo í athugasemd að hann skilji svo sem að flokkur með sitjandi fulltrúa kunni því illa að vera settur í síðasta hólfið. „En á hitt ber að líta að FF var ekki búið að kynna framboðslistann sinn þegar hinir þættirnir voru sýndir.“ Heimir Már geti þannig sjálfum sér um kennt að hafa verið skikkaður til að mæta í síðasta þáttinn.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Flokkur fólksins Ríkisútvarpið Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira