Í þágu heimilanna… utan ESB Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar 15. apríl 2026 12:32 Fyrir síðustu helgi kynnti ríkisstjórn Íslands tímabundnar efnahagsaðgerðir til þess að hemja síhækkandi verðbólgu. Eina raunverulega útspilið sem kom þar fram eru áform ríkisstjórnarinnar um það að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti á dælu úr 24% niður í 11% til þess að bregðast við hækkun á eldsneytisverði af sökum breyttrar heimsmyndar. Hvort að það sé þörf á víðtækari aðgerðum, t.a.m. tímabundin lækkun eða niðurfelling kolefnisgjaldsins, er hægt að ræða endalaust fram og til baka. Valkyrjurnar tala um að þessi aðgerð sé fyrir heimilin í landinu og að hún skili sér beint í vasa heimilanna, sem hún mun svo sannarlega gera, óháð því hversu mikið skilar sér þangað. Persónulega fagna ég því að ríkisstjórnin ætli loks í aðgerðir til þess að reyna að ná verðbólgunni niður, eftir að hafa farið í hverja aðgerðina á fætur annari sem ýtir undir verðbólguna, batnandi mönnum er best að lifa. En þó svo að ég, líkt og margir aðrir Íslendingar, fagni því að ríkisstjórnin fari í aðgerðir til þess að hjálpa heimilinum í landinu að þá er ein stofnun sem gerir það hinsvegar ekki. Sú stofnun nefnist Evrópusambandið. Ríkisstjórn Íslands var nefnilega ekki sú eina til þess að koma með þessa lausn sem svar við hækkun eldsneytisverðs í heiminum, vegna þess að áður en Valkyrjurnar kynntu sínar aðgerðir kynntu ríkisstjórnir Póllands og Spánar áform sín um að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti. Evrópusambandið var hinsvegar ekki á sama máli og var fljótt að senda viðvörun á bæði Pólland og Spán þar sem það minnti ríkisstjórnir beggja landa á það að þeim er í raun óheimilt, samkvæmt Evrópulöggjöfinni, að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti með því móti sem þær hyggjast gera. Ríkisstjórn Íslands getur því fagnað þeirri staðreynd að við séum ekki hluti af Evrópusambandinu. Af því ef við værum hluti af því þá hefði þessi aðgerð, sú eina sem ríkisstjórnin hefur komið með hingað til sem snýr að því að ná niður verðbólgu, verið stöðvuð af Evrópusambandinu. Evrópusambandið hefði stoppað aðgerð sem, að eigin sögn ríkisstjórnarinnar, er fyrir heimilin í landinu. Staðreyndin er nefnilega sú þegar það kemur að Evrópusambandinu að hagsmunir sambandsins munu alltaf ná fram yfir hagsmuni íbúa staks ríkis innan þess. Þegar það er raunin þá er ómögulegt að ganga inn í slíkt samband án þess að gefa upp að minnsta hluta af því fullveldi sem viðkomandi þjóð hefur. Þegar samband áskilur sér rétt til þess að taka fyrir hendur ríkisstjórna landa innan þess, þegar kemur að aðgerðum í þágu íbúa viðkomandi lands, er ómögulegt fyrir ríkisstjórnir landa innan sambandsins að standa í þeirri hagsmunagæslu sem íbúar þeirra eiga skilið. Það þarf ekki að kíkja í neinn pakka til þess að komast að staðreyndum málsins, þær liggja nú þegar á borðinu og það breytist ekki, alveg sama hversu mikið ákveðnir aðilar reyna að halda öðru fram. Hagsmunum Íslendinga er best varið utan Evrópusambandsins og nú, með þeim efnahagsaðgerðum sem kynntar voru fyrir síðustu helgi, virðast meira að segja Evrópusinnarnir í ríkisstjórninni vera orðnir sammála því, ótrúlegt en satt. Höfundur er fjármálaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar