Handbolti

Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Loftur Ásmundsson og félagar spilar áfram í Olísdeild karla næsta vetur.
Loftur Ásmundsson og félagar spilar áfram í Olísdeild karla næsta vetur. Vísir/Anton

Stjörnumenn unnu í kvöld þriðja leikinn í röð á móti Herði í umspilinu um laust sæti í Olísdeild karla í handbolta á næstu leiktíð.

Stjarnan hafði unnið tvo fyrstu leikina í einvíginu og nægði því einn sigur í viðbót.

Leikurinn í kvöld endaði í framlengingu eftir 29-29 jafntefli. Stjörnumenn voru miklu sterkari í framlengingunni, unnu hana 11-3 og þar með leikinn með átta marka mun, 40-32.

Stjarnan fór í umspilið eftir að liðið endaði í næstneðsta sæti Olísdeildarinnar. Stjarnan vann leik eitt 35-20 og svo leik tvö á Ísafirði með þremur mörkum, 24-21.

Ísak Logi Einarsson skoraði tíu mörk fyrir Stjörnuna í kvöld, Jóel Bernburg var með sjö mörk og Hans Jörgen Ólafsson skoraði sex mörk.

Jose Esteves Lopes Neto skoraði átta mörk fyrir Hörð og Jhonatan C. R. Dos Santos var með sex mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×