Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar 16. apríl 2026 08:02 Ný matarstefna Reykjavíkurborgar er bæði metnaðarfull og tímabær, og í raun mikilvægt skref í átt að markvissari stefnumótun um mat, heilsu og sjálfbærni. Stefnan er umfangsmikil, með fjölmörgum aðgerðum sem snúa ekki aðeins að því hvað er á disknum, heldur einnig hvernig matur er framleiddur, eldaður og borinn fram, hver hefur aðgang að honum og hvaða áhrif hann hefur til lengri tíma – bæði á heilsu fólks og umhverfi. Mikil umræða hefur skapast um þá aðgerð að unnar kjötvörur falli út af matseðli sem aðalmáltíð, en sú umræða endurspeglar að vissu leyti hversu varhugavert er að einblína á eitt atriði í stað þess að horfa á heildarmyndina. Í raun er þetta aðeins ein af mörgum aðgerðum stefnunnar, sem í grunninn snýst um að bæta gæði opinberra máltíða og tryggja fjölbreyttara og hollara fæðuval. Það er ekki verið að leggja blátt bann við ákveðnum matvælum, heldur að endurskoða hvaða matur á að vera daglegur grunnur í máltíðum sem eru bornar fram fyrir stóra hópa, sérstaklega börn. Þegar horft er á þetta í samhengi við lýðheilsu verður ljóst að opinberar máltíðir eru aldrei hlutlausar. Aðgerðaleysi er í sjálfu sér ákveðin neyslustýring. Ef við veljum að breyta engu, þá erum við jafnframt að viðhalda ákveðnu matarumhverfi og venjum. Þar sem stór hluti barna borðar daglega í leik- og grunnskólum, skiptir það sem er boði ekki aðeins máli fyrir daglega líðan og einbeitingu, heldur einnig fyrir langtímaheilsu og matarsmekk. Þannig verður matur hluti af uppeldi og menntun, rétt eins og annað sem börn læra í skólaumhverfinu og má í raun horfa á matinn í boði eins og námsefnið, þar sem gæðin móta viðhorf og mennta til framtíðar. Í þessu samhengi er einnig mikilvægt að skýra hvað felst í hugtakinu „unnar kjötvörur“. Þar er átt við vörur sem hafa verið reyktar, saltaðar eða rotvarðar með öðrum hætti, svo sem pylsur, bjúgu, beikon, skinku og kjötfars. Rannsóknir hafa sýnt að regluleg neysla slíkra vara tengist aukinni hættu á tilteknum krabbameinum, sérstaklega í ristli og endaþarmi. Það þýðir þó ekki að slíkar vörur eigi aldrei heima í mataræði, heldur að þær ættu ekki að vera daglegur uppistaða í máltíðum sem eru skipulagðar af opinberum aðilum. Hér áður fyrr þótti sjálfsagt að bjóða sætindi í leikskólum á afmælisdögum og ákveðin mótstaða var þegar sú hefð lagðist af. Líkt og með sætindi er eðlilegt að ábyrgðin á neyslu unnina kjötvara og annarra gjörunninna matvæla sé fyrst og fremst hjá foreldrum og forsjáraðilum en ekki hluti af daglegu skólaumhverfi. Það sem vegur þó þyngst í þessari stefnu, og fær ef til vill minni athygli en skyldi, er áherslan á forystu og framkvæmd. Þar er sérstaklega lögð áhersla á þverpólitískt samráð og samráð við ólíka hagaðila, þar á meðal borgarbúa sjálfa, og að tryggt sé virkt gæðaeftirlit með innleiðingu stefnunnar. Þetta er lykilatriði, enda hefur lengi verið kallað eftir skýrari gæðastýringu í opinberum máltíðum. Án slíkrar eftirfylgni verða jafnvel bestu stefnur áhrifalausar. Stefnan fellur einnig vel að breiðari áherslum stjórnvalda í forvörnum og heilsueflingu, þar sem meðal annars hefur verið lögð áhersla á að tryggja öllum aðgengi að hollum og fjölbreyttum mat, til dæmis í skólamötuneytum, á vinnustöðum og á heilbrigðisstofnunum. Innleiðing gjaldfrjálsra skólamáltíða árið 2024 undirstrikar enn frekar mikilvægi þess að gæði og innihald skólamáltíða séu í forgrunni. Samhliða þessu er sterk áhersla á sjálfbærni, minni matarsóun og lægra kolefnisspor. Neysla á kjöti hefur þar umtalsverð áhrif, og því er aukið framboð af grænmetisréttum ekki aðeins heilsufarslegt mál heldur einnig loftslagsmál. Einnig er lögð áhersla á að matur sé eldaður sem næst neytendum, sem styður við ferskleika, gæði og styttri virðiskeðjur. Slík nálgun tengist beint hugmyndum um fæðuöryggi og seiglu í fæðukerfum, sem vísar til hæfni fæðukerfa til að standast áföll, aðlagast breytingum og halda áfram að tryggja næga, örugga og næringarríka fæðu fyrir öll á þann hátt að kerfin þoli áföll eins og loftslagsbreytingar, stríð og efnahagskreppur. Í heild sinni snýst matarstefnan því um miklu meira en einstaka matvæli. Hún snýst um að skapa heilsueflandi fæðuumhverfi, draga úr ójöfnuði í aðgengi að mat, styðja við sjálfbærni og nýta matartímann sem vettvang fyrir lærdóm og upplifun. Það sem við berum á borð fyrir börnin er ekki aðeins næring heldur skilaboð um gildi, forgangsröðun og framtíðarsýn samfélagsins. Höfundur er prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands og Uppsalaháskóla í Svíþjóð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Stjórnsýsla Matur Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar