Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar 16. apríl 2026 12:31 Við vitum öll að það er afskaplega gott að búa í Mosó. Skólarnir, félagsmiðstöðvarnar og íþróttafélagið mynda sterka umgjörð fyrir börnin okkar, allt frá leikskóla upp í menntaskóla, þó vissulega sé alltaf hægt að gera betur. En á heildina litið held ég að það sé afskaplega gott að alast upp sem barn í Mosó Í umræðunni um fræðslumál kemur reglulega upp umræða um miðlæga stjórnsýslu og yfirbyggingu, og stundum kemur fram það sjónarmið að skera þurfi niður í henni.Ég fagna þeirri umræðu, hvort sem hún snýr að fræðslumálum eða hverju öðru sviði í rekstri bæjarins, því það er skylda kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins að fara vel með skattfé. En slíka umræðu þarf að byggja á staðreyndum en ekki innantómum frösum, því orðum fylgir ábyrgð. Af því tilfefni fannst mér tilvalið að skoða ögn hvað fellur undir miðlæga stjórnsýslu í fræðslumálum hjá Mosó, og hvort vangaveltur um niðurskurð eða tilfærslu stöðugilda úr miðlægri stjórnsýslu og út í skólana eigi sér stoð í staðreyndum. Hvað er yfirbygging? Yfirbyggingin, sem svo er stundum nefnd, er í raun miðlæg stjórnsýsla sveitarfélagsins sem snýr að því að sinna þörfum allra leik- og grunnskóla bæjarins. Það dytti t.d. engum í hug að hver og einn skóli hefði sinn mannauðsfulltrúa, heldur væri það hlutverk miðlægrar stjórnsýslu að aðstoða við ráðningar í skólum bæjarins, þannig nýtist stöðugildið mun betur og kostnaði er haldið niðri. Í dag eru 14 stöðugildi í miðlægri stjórnsýslu skóla- og frístundasviðs Mosó.Einhverjum gæti fundist það vel í lagt og séð sér leik á borði að kalla eftir fækkun þar. 14 manns er jú ansi fjölmenn deild. Hverjir eru hluti af yfirbyggingunni? Skoðum aðeins betur hvað þessir 14 aðilar gera - því miður nær umræðan nefnilega ekki alltaf niður á þá dýpt. Af þessum 14 eru þrír sálfræðingar og einn talmeinafræðingur sem vinna alla daga í úti í skólunum. Það er einn forvarnarfulltrúi sem sinnir öllum grunnskólunum. Það eru tvö stöðugildi sem fara í að sinna þjónustu við alla leikskóla bæjarins, t.d. innritanir barna og slíkt, og eitt stöðugildi sem veitir grunn- og leikskólum ráðgjöf, enda eru leikskólabörn í bænum líklega um 1.000 talsins. Það er eitt stöðugildi sem sinnir málefnum allra grunnskólanna, en það eru líklega um 3.000 grunnskólanemendur í bænum.. Það er einn mannauðsráðgjafi sem sinnir öllum skólunum, hvort sem það eru grunn- eða leikskólar. Það er einn verkefnastjóri sem sér um að öllum boltum sé haldið á lofti, það er svo einn sviðsstjóri sem stýrir öllum þessum verkefnum, og ekki má gleyma starfsmanni sem samhæfir og skipuleggur skólaþjónustu allra skólanna, hvort sem það eru leik- eða grunnskólar. Við viljum jú að haldið sé utan um stuðningskennslu og námsráðgjöf. Einn starfsmaður sér svo um að stýra verkefninu farsæld barna, sem allir flokkar eru sammála um að sé í senn mikilvægt og þurfi að víkka út ef eitthvað er. Eigum við að minnka yfirbygginguna? Við eigum alltaf að huga að því að hafa yfirbyggingu í stjórnsýslu sem minnsta og þjónustuna sem næst íbúunum. En stundum er einfaldlega algerlega borðleggjandi að hlutir séu keyrðir miðlægt frekar en úti í einstökum einingum. Eins mikill talsmaður þess að hafa yfirbyggingu sem minnsta, þá get ég ekki með nokkru móti séð hvernig hægt er að fækka stöðugildum sem talin eru upp að ofan, eða þá að færa einhver þeirra út í einstaka skóla. Getum við talað um staðreyndir? Við viljum öll tryggja gott og farsælt skólastarf fyrir börnin okkar. En getum við gert þá kröfu til þeirra stjórnmálamanna sem vonast eftir brautargengi í komandi kosningum að þeir byggi fullyrðingar sínar og skoðanir á staðreyndum? Höfundur er í 5. sæti á lista Viðreisnar fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar