Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 16. apríl 2026 13:31 Margir líta til haftatímabilsins á Íslandi, árin 1930 til 1960, sem liðins tíma skorts og ríkisstýringar. Þá réðu innflutningsnefndir því hvaða tegund af sápustykki mátti flytja inn, og gjaldeyrisskömmtun gerði utanlandsferðir að hálfgerðu sakamáli. Við teljum okkur lifa á tímum frjálsrar verslunar í dag, en ef við rýnum í tölurnar, vaknar áleitin spurning: Hafa gömlu höftin einfaldlega farið í „andlitslyftingu“ og verið færð yfir í leynilegan flipa í töflureikni? Þótt búðarhillur svigni undan allskyns vörum, býr almenningur við kerfislægan kostnað sem virkar eins og duldir fjötrar á lífskjör. Munurinn er sá að áður var frelsið skert með beinum reglugerðum, en í dag er það gert með vöxtum, tollum og krónunni, þessum dýrasta minjagrip sem íslenska þjóðin hefur nokkurn tímann eignast. Vaxtahöftin: Nútíma skömmtun Á haftaárunum var fjármagni skammtað af pólitískum nefndum. Í dag skammtar krónan lífsgæði okkar í gegnum vaxtastigið. Íslensk fjölskylda greiðir umtalsvert hærra hlutfall ráðstöfunartekna í vexti en t.d. sambærileg fjölskylda á Norðurlöndunum. Þessi vaxtamunur er í raun „lúxusskattur“ á það eitt að búa á Íslandi. Peningarnir sem hverfa í hít vaxtafjötranna gætu nýst í menntun, ferðalög eða nýsköpun svo eitthvað sé nefnt. Þegar svo vaxtastigið gerir ungu fólki nánast ómögulegt að eignast þak yfir höfuðið án þess að veðsetja framtíðina og múra sig fasta í vaxtafjötra sem endast út starfsævina, erum við komin með kerfi sem hefur sömu hamlandi áhrif og gömlu höftin, tækifærin eru einfaldlega hamlandi fyrir almenning. Landbúnaður og kaupfélög: Samvinna í viðjum fortíðar Íslenskur landbúnaður og kaupfélögin eru órjúfanlegur hluti af menningararfi okkar. Kaupfélögin voru stofnuð sem andsvar við einokun og fátækt, dæmi um samtakamátt í fjötrum hafta, en þau voru jafnframt afkvæmi þess lokaða hagkerfis sem þá ríkti. Hins vegar hefur núverandi kerfi, með háum verndartollum, leitt til þess að íslenskur matvælamarkaður minnir stundum meira á skömmtunaráratugina en nútímann. Á haftaárunum var SÍS (Samband íslenskra samvinnufélaga) ríki í ríkinu. Með ítök sín í stjórnmálum og nánast einkaleyfi á verslun víða um land, tryggði Sambandið að samkeppni var barin niður í skjóli innflutningshafta. Þótt SÍS hafi fallið, lifir „kaupfélagsmódelið“ enn góðu lífi í ákveðnum landshlutum, og má því segja að lengi lifi í gömlum glæðum. Enn þann dag í dag sjáum við t.d. kaupfélög sem njóta ríkulega góðs af því að Ísland standi utan ESB, þar sem þau stýra bæði framleiðslu og verslun á einangruðum mörkuðum þar sem neytandinn hefur fáa aðra kosti. Þetta skapar nýja gerð af staðbundnum fjötrum, þar sem neytandinn situr fastur í kerfi sem þjónar hagsmunum fárra á kostnað fjöldans. Uppfærsla í stað einangrunar Í stað þess að óttast Evrópu eins og grýlu, mætti líta á hana sem tækifæri til að uppfæra þetta kerfi. Samvinnuandinn þarf nefnilega ekki tollamúra til að lifa af, hann þarf svigrúm til að vaxa í umhverfi sem er laust við viðjar vaxtafjötra. Í stað þess að horfa á ESB-aðild sem ógn við landbúnaðinn, má líta á hana sem tækifæri til sóknar. Íslenskar gæðaafurðir gætu átt greiða leið að milljónum neytenda sem meta hreinleika og gæði, og íslenskir bændur gætu notið stuðningskerfa sem leggja áherslu á umhverfismál og sérstöðu. Með því að lækka hráefnisverð og fjármagnskostnað gætu íslensk matvælafyrirtæki sótt fram í stað þess að verja vígi sín með hugsanagangi sem minnir á haftatímana. Tvískipta hagkerfið og „fullveldi“ hinna fáu Það er dásamleg kaldhæðni fólgin í því að stærstu fyrirtæki landsins geta mörg hver þegar keypt sig út úr krónunni. Þau gera upp í evrum og sækja lánsfé á alþjóðlegum kjörum, á meðan bakaríið á horninu, rafverktakinn eða litla tæknifyrirtækið sitja föst í vaxtahöftum dagsins. Það er mannlegt að forystufólk í atvinnulífi og stjórnmálum, sem starfar innan verndaðra geira, sé tregt til breytinga. Það er jú svo þægilegt að boða fullveldi í ræðustólum á meðan rekstrarmódelið byggir á því að neytandinn hafi enga aðra kosti en þá sem boðið er upp á innan múranna. Raunverulegt frelsi felst í því að þora að keppa á jafnréttisgrundvelli, en ekki að skýla sér á bak við ósýnileg höft sem tryggja fákeppni og pólitíska bitlinga. Nýi popúlisminn og spurningin um fullveldi Á haftaárunum var almenningi iðulega sagt að án ríkisstýringar myndi samfélagið nánast hrynja, og í dag sjáum við svipaða aðferðafræði hjá ákveðnum öflum. Beitt er popúlisma þar sem flókin efnahagsmál eru einfölduð niður í baráttu „þjóðarinnar“ gegn „elítunni í Brussel“. Fullveldið er notað sem skjöldur til að koma í veg fyrir breytingar sem gætu lækkað vexti og matarverð, sem er dálítið eins og að neita að skipta um bilaðan bíl vegna þess að maður þekkir hvernig gamalgróið skröltið hljómar, jafnvel þótt viðgerðakostnaðurinn sé að gera fjölskyldunni stórar skráveifur í veskinu. Hvers virði er fullveldið ef við höfum ekkert vald yfir reglunum sem við fylgjum? Við innleiðum stóran hluta löggjafar ESB í gegnum EES-samninginn en sitjum á hliðarlínunni þegar ákvarðanirnar eru teknar. Við erum „regluþegar“ í kerfi sem við höfum enga rödd í, ástand sem minnir óþægilega mikið á embættismannakerfi haftatímans þar sem einræðar nefndir réðu för, og gerir okkur þannig að farþegum í eigin stjórnskipun þar sem við borgum farið en fáum engu ráðið um hvert ferðinni er heitið. Niðurstaða: Úr viðjum haftanna Það er kominn tími til að viðurkenna að einangrunin er dýr, og við greiðum hátt gjald fyrir að standa utan Evrópusambandsins. Kostnaðurinn birtist í rýrari bankainnistæðum, dýrari innkaupakörfum og vaxtabyrði sem engin önnur þróuð þjóð myndi sætta sig við til lengdar. Sagan sýnir okkur að í hvert sinn sem við höfum opnað gluggana og aukið frelsi í viðskiptum, hvort sem það var 1960 eða 1994, þá hefur það skilað sér í betri lífskjörum. Við þurfum ekki meiri einangrun, heldur meiri samkeppnishæfni. Við þurfum ekki fleiri sögulegar minningar um höft, heldur raunverulegan efnahagslegan stöðugleika sem nær til allra, en ekki bara hinna fáu sem kunna að nýta sér hið fjötraða kerfi hafta. Spurningin er ekki hvort við höfum efni á að ganga til samstarfs við Evrópu, heldur hvort við höfum efni á að láta það ógert. Höft eru aldrei til góðs til lengdar, og það er kominn tími til að við hættum að borga með lífskjörum okkar fyrir forréttindi þeirra sem telja sér best borgið innan lokaðs kerfis. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann svo og sérlegur áhugamaður um Já við ESB-viðræðum . Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun