Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar 17. apríl 2026 12:31 EES-samningurinn er eitt víðtækasta alþjóðasamstarf Íslands. Hann veitir fyrirtækjum aðgang að innri markaðnum og tryggir Íslendingum rétt til náms og starfa í öllum ríkjum EES. Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB hefur verið rætt um hvort um sé að ræða aðildar- eða aðlögunarviðræður. Staðreyndin er sú að Ísland hefur aðlagast regluverki ESB í yfir þrjá áratugi. Þegar Íslendingar greiða atkvæði 29. ágúst snýst málið um hvort halda eigi aðildarviðræðum áfram. Líta má á tengslin við Evrópu sem þrjá ólíka farvegi. Fyrsti farvegurinn: EES-samningurinn. Þetta er okkar helsti snertiflötur við Evrópu. Frá 1994 höfum við innleitt stóran hluta regluverks ESB á fjölmörgum sviðum innri markaðarins, en án beinnar aðkomu að ákvörðunartöku. Þetta er stöðugt ferli sem stýrt er í gegnum sameiginlegu EES-nefndina og verður við lýði svo lengi sem við erum í samstarfinu. Annar farvegurinn: Sjálfviljuga samstarfið. Hér er um að ræða samstarf sem Ísland velur að taka þátt í af hagnýtum ástæðum utan EES-rammans. Schengen er þekktasta dæmið, en einnig þátttaka í Frontex, Europol og rannsóknaráætlunum ESB. Samstarf á sviði öryggis- og varnarmála er vaxandi þáttur hér, þar sem Ísland tekur þátt í borgaralegum verkefnum til að bregðast við sameiginlegum ógnum. Þetta eru leiðir sem við höfum sjálf valið til að tryggja hagsmuni okkar. Þriðji farvegurinn: Aðildarferlið og IPA-stuðningurinn. Þessi farvegur virkjast aðeins í formlegu aðildarferli. Við umsóknina 2009 fékk Ísland aðgang að IPA-áætluninni sem veitir fjárhagslegan og tæknilegan stuðning við uppbyggingu stofnana og innviða. Stuðningurinn felst einnig í markvissri miðlun sérþekkingar og ráðgjöf evrópskra sérfræðinga. Þessi möguleiki lokaðist þegar hlé var gert á viðræðum og stendur aðeins til boða ef þær hefjast á ný. Aðlögun Íslands að ESB er veruleiki sem við höfum búið við í áratugi. Atkvæðagreiðslan snýst ekki um hvort við eigum í samstarfi við Evrópu, heldur á hvaða forsendum. Valið stendur um að halda okkur við núverandi fyrirkomulag eða opna þriðja farveginn með því að hefja aðildarviðræður á nýjan leik. Raunveruleg aðkoma að mótun regluverksins og sæti við borðið krefst þó þess að samningur náist og verði síðar samþykktur í sjálfstæðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Höfundur er stjórnmálafræðingur með MA í alþjóðasamskiptum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar