30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar 18. apríl 2026 14:32 Nýjasta blótsyrði í pólitískri umræðu hér á landi er „aðlögun.” Andstæðingar þess að ræða hugsanlega fulla aðild að ESB segja að slík umræða sé ekkert annað en aðlögun að fullri þátttöku að umræddum samtökum sem þeir telja hættulegt fyrir sjálfstæði þjóðarinnar og jafnvel tilvist. Allt verði af okkur tekið þar á meðal gjöful fiskimið og orkulindir auk mannvirkja þeim tengdum. Yfir okkur dynji móðuharðindi af mannavöldum eins og sagt var þegar við samþykktum að vera með í EES-samstarfinu. Sú ákvörðun hefur þó reynst þjóðinni ákaflega farsæl og allar hrakspár reynst yfirgengilegar ýkur og alveg upp í hreint bull. Og nú er sami steinninn klappaður af ákafa; stórhættulegt svo mikið sem að ræða fulla aðild að ESB og geta nýtt þá kosti sem því muni fylgja. Nei, halda áfram eins og síðustu 30 árin að taka við reglum og fyrirmælum frá ESB og aðlaga sig að þeim án þess að koma nærri umfjöllun þeirra og mótun. Þess í stað hamrað á því að við séum svo lítil og vesæl og því verði ekki hlustað á okkur við ESB-borðið. Þá er nú betra að halda áfram eins og síðustu 30 árin að aðlaga sig að reglum sem við höfum ekkert komið nálægt að búa til vegna þess að minnimáttarkenndin þarf að fá sitt svigrúm! Þetta er nú allt sjálfstæði þessa góða fólks en útiboruhátturinn leiddur til öndvegis og þrástagast á því að við séum svo aum enda þótt oft hafi sannast að smáþjóðir hafa náð sterkri stöðu í einstaka málaflokkum í sambandinu ef þau undirbúa málflutning sinn vel og fylgja honum eftir af festu. Þegar fjallað er um meginviðfangsefni í sjávarútvegsmálum í viðræðum um hugsanlega aðild að ESB er eðlilegt að leggja ríka áherslu á að við höldum áfram fullum og óskoruðum yfirráðum yfir fiskiveiðum innan 200 mílna. Þar skiptir reglan um hlutfallslegan stöðugleika (relative stability) miklu máli fyrir okkur enda tryggir hún að þeir sem hafa veitt á tilteknum hafsvæðum geti haldið því áfram í friði og fari eftir viðurkenndum reglum sem stjórnkerfi ESB (The Common Fisheries Policy) hefur haft umsjón með undanfarin ár – bæði fyrir Ísland og ESB-ríkin. Hvernig það getur talist hættulegt fyrir Ísland að láta á þetta reyna með samningaviðræðum er næsta óskiljanlegt því ekki er verið að voga nokkrum hlut eða að taka nokkra áhættu. Nú síðast staðfesti Costas Kadis sjávarútvegsstjóri ESB að þess væru fjölmörg dæmi í fyrri samningaviðræðum að tekið hefði verið tillit til sérkenna umsóknarríkja. Ótti okkar Íslendinga og útiboruháttur má ekki vera svo yfirþyrmandi að ekki sé óhætt að tala við slíka menn. Í minni sveit var talið næsta vonlaust að ná nokkru fram ef fólk þyrði ekki að opna munninn en loka sig þess í stað inni fyrir hræðslu sakir eins og litlir hérar.Sú þjóð sem ekki treystir sér til að tala við aðrar getur tæpast kallast sjálfstæð hvað þá fullvalda. Hún er föst í heljargreipum óttans og heldur áfram næstu áratugi að aðlaga sig reglum ESB án þess að hafa áhrif á þær vegna minnimáttarkenndar. Því er ekki nema sjálfsagt að vera jákvæður þegar við verðum spurð að því í þjóðaratkvæðagreiðslu síðar á þessu ári hvort við eigum að halda áfram og ljúka samningaviðræðum við ESB um fulla aðild hins sjálfstæða og fullvalda ríkis Íslands. Eftir það getum við svo vegið og metið hvort fyrirliggjandi samningur við ESB er hagstæður okkur Íslendingum eður ei. Ekki fyrr en þá ættu helstu staðreyndir að liggja fyrir og fólkið í landinu að geta tekið afstöðu til þeirra óttalaust og upplitsdjarft. Eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar