Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2026 11:02 Jaka Brodnik var með Keflavík í síðasta oddaleik liðsins sem var í undanúrslitunum 2024. Vísir/Vilhlem Karlalið Keflavíkur er komið í oddaleik í einvígi sínu á móti Val í átta liða úrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta. Keflvíkingar hafa fallið á öllum slíkum prófum undanfarin fimmtán ár. Keflvíkingar hafa ekki unnið oddaleik í úrslitakeppni karla síðan þeir unnu oddaleik á móti ÍR í átta liða úrslitum vorið 2011. Sá leikur fór fram 23. mars 2011 eða fyrir næstum því 181 mánuði síðan. Keflavík var þá á heimavelli og vann fimm stiga sigur í framlengingu, 95-90, eftir að hafa verið níu stigum undir fyrir lokaleikhlutann, 56-65. Sigurður Gunnar Þorsteinsson skoraði 26 stig í leiknum og Andrija Ciric var með 21 stig. Bandaríkjamaðurinn Thomas Sanders skoraði 15 stig, tók 9 fráköst og stal 6 boltum. Hörður Axel Vilhjálmsson lék þarna með Keflavík og bauð upp á 11 stig, 5 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Síðustu sjö oddaleikir Keflvíkinga hafa hins vegar allir tapast en þeir hafa allir verið á útivelli eins og leikurinn í kvöld. Valsmenn, mótherjar Keflavíkur í kvöld, hafa aftur á móti spilað sex oddaleiki síðustu fimm tímabil og unnið fjóra þeirra eða 67 prósent leikjanna. Sagan er því með Hlíðarendaliðinu í kvöld. Valur er samanlagt með sjö sigra og sex töp í þrettán oddaleikjum félagsins í úrslitakeppni karla en Keflvíkingar eru samanlagt með sextán sigra og sautján töp í 33 oddaleikjum sínum í sögunni. Síðustu sjö oddaleikir Keflavíkur hafa allir tapast: Undanúrslit 2024: 49 stig tap fyrir Grindavík (63-112) Átta liða úrslit 2022: 14 stig tap fyrir Tindastól (85-99) Átta liða úrslit 2018: 6 stig tap fyrir Haukum (66-72) Átta liða úrslit 2015: 17 stig tap fyrir Haukum (79-96) Átta liða úrslit 2013: 5 stig tap fyrir Stjörnunni (77-82) Átta liða úrslit 2012: 7 stig tap fyrir Stjörnunni (87-94) Undanúrslitin 2011: 16 stig tap fyrir KR (89-105) Bónus-deild karla Keflavík ÍF Valur Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ Sjá meira
Keflvíkingar hafa ekki unnið oddaleik í úrslitakeppni karla síðan þeir unnu oddaleik á móti ÍR í átta liða úrslitum vorið 2011. Sá leikur fór fram 23. mars 2011 eða fyrir næstum því 181 mánuði síðan. Keflavík var þá á heimavelli og vann fimm stiga sigur í framlengingu, 95-90, eftir að hafa verið níu stigum undir fyrir lokaleikhlutann, 56-65. Sigurður Gunnar Þorsteinsson skoraði 26 stig í leiknum og Andrija Ciric var með 21 stig. Bandaríkjamaðurinn Thomas Sanders skoraði 15 stig, tók 9 fráköst og stal 6 boltum. Hörður Axel Vilhjálmsson lék þarna með Keflavík og bauð upp á 11 stig, 5 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Síðustu sjö oddaleikir Keflvíkinga hafa hins vegar allir tapast en þeir hafa allir verið á útivelli eins og leikurinn í kvöld. Valsmenn, mótherjar Keflavíkur í kvöld, hafa aftur á móti spilað sex oddaleiki síðustu fimm tímabil og unnið fjóra þeirra eða 67 prósent leikjanna. Sagan er því með Hlíðarendaliðinu í kvöld. Valur er samanlagt með sjö sigra og sex töp í þrettán oddaleikjum félagsins í úrslitakeppni karla en Keflvíkingar eru samanlagt með sextán sigra og sautján töp í 33 oddaleikjum sínum í sögunni. Síðustu sjö oddaleikir Keflavíkur hafa allir tapast: Undanúrslit 2024: 49 stig tap fyrir Grindavík (63-112) Átta liða úrslit 2022: 14 stig tap fyrir Tindastól (85-99) Átta liða úrslit 2018: 6 stig tap fyrir Haukum (66-72) Átta liða úrslit 2015: 17 stig tap fyrir Haukum (79-96) Átta liða úrslit 2013: 5 stig tap fyrir Stjörnunni (77-82) Átta liða úrslit 2012: 7 stig tap fyrir Stjörnunni (87-94) Undanúrslitin 2011: 16 stig tap fyrir KR (89-105)
Síðustu sjö oddaleikir Keflavíkur hafa allir tapast: Undanúrslit 2024: 49 stig tap fyrir Grindavík (63-112) Átta liða úrslit 2022: 14 stig tap fyrir Tindastól (85-99) Átta liða úrslit 2018: 6 stig tap fyrir Haukum (66-72) Átta liða úrslit 2015: 17 stig tap fyrir Haukum (79-96) Átta liða úrslit 2013: 5 stig tap fyrir Stjörnunni (77-82) Átta liða úrslit 2012: 7 stig tap fyrir Stjörnunni (87-94) Undanúrslitin 2011: 16 stig tap fyrir KR (89-105)
Bónus-deild karla Keflavík ÍF Valur Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ Sjá meira