„Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Valur Páll Eiríksson skrifar 20. apríl 2026 11:30 Halldór Árnason hlóð Hrafn Tómasson lofi í Stúkunni. Vísir/Sýn Sport „Hann bara stjórnar miðjunni fyrir KR,“ segir Baldur Sigurðsson í Stúkunni um Hrafn Tómasson, sem var maður leiksins er KR vann 5-2 sigur á Þór í Bestu deild karla á föstudaginn var. Hrafn hefur skinið skært í upphafi móts.
Hrafn, eða Krummi eins og hann er gjarnan kallaður, hefur leikið einkar vel fyrir KR í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins. Hann var sérlega öflugur í sigri KR-inga á föstudaginn var og var valinn maður leiksins. „Hann bara stjórnar miðjunni fyrir KR. Hann gerði það í þessum leik. Hann er góður sóknarlega og varnarlega. Ég er svolítið að uppgötva hann sem leikmann, hann náttúrulega meiðist og svona. Hann er nýr fyrir mér, en mér finnst hann frábær og verðskuldaður maður leiksins í þessum leik,“ segir Baldur Sigurðsson, fyrrum miðjumaður KR, í Stúkunni er leikurinn var gerður upp. Krummi átti að vera hluti af aðalliðshópi KR tímabilið 2024 undir stjórn Greggs Ryder. Hann sleit hins vegar krossband í fyrsta leik tímabilsins við Fylki í Árbæ það sumarið og ekkert varð af því. Það var í annað skipti sem Krummi sleit krossband og hann tók árið 2024 og stóran hluta síðasta árs í að jafna sig. Hann komst af stað um mitt síðasta sumar og fór á lán til Þróttar í Lengjudeildinni þar sem hann var lykilmaður. Hann hefur svo stimplað sig inn hjá KR eftir endurkomu þangað frá Þrótti í haust. „Þetta er strákur sem Vesturbærinn hefur beðið svolítið lengi eftir. Hann hefur lent í leiðinlegum meiðslum á ferli sínum. Hann fór á lán eftir krossbandaslit til Þróttar í fyrra og hefur fengið traustið í vetur. Hann hefur stimplað sig vel inn,“ segir Vesturbæingurinn Halldór Árnason, fyrrverandi þjálfari Breiðabliks, í Stúkunni. „Hann var frábær í kvöld, með 91 heppnaða sendingu af 97. Hann er ofboðslega góður á boltann, sér leikinn skemmtilega og með gott auga fyrir spili. Það sem hann hefur bætt sig gríðarlega varnarlega síðan í fyrra. Ég finn það þegar maður fer um KR-svæðið að það er rosaleg stemning fyrir Krumma í Vesturbænum. Þetta er KR-ingur í gegn, sem gerir mikið fyrir fólkið líka,“ segir Halldór jafnframt. Óskar Hrafn Þorvaldsson sagði í viðtali við Vísi eftir leik að Krummi hefði að öðrum ólöstuðum verið besti leikmaður vallarsins. Það var borið undir Hrafn í viðtali eftir leikinn sem má sjá í spilaranum að neðan. „Eigum við ekki að horfa á leikinn aftur og meta þetta þá?“ sagði Hrafn léttur, spurður hvort hann hafi sjálfur upplifað sig sem besta mann vallarsins. „Mér hefur liðið mjög vel á vellinum með þessu liði frá því ég byrjaði að spila með því,“ segir Hrafn sem hefur fundið sig vel í upphafi móts. Umræðuna um Hrafn má sjá í spilaranum að ofan en viðtalið að neðan. Klippa: „Eigum við ekki að horfa á leikinn aftur og meta þetta þá?“
KR Besta deild karla Stúkan Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira