Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Oddur Ævar Gunnarsson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 20. apríl 2026 13:15 Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Vísir/Anton Brink Það verður flókið að mynda meirihluta í borgarstjórn í vor miðað við nýuppfærða kosningaspá Vísis að mati stjórnmálafræðings. Stóru tíðindin nú séu þau að það mikla sóknarfæri sem opnast hafi á vinstri væng íslenskra stjórnmála sé byrjað að fyllast, sérstaða Vinstrisins sé miklu skýrari en ella. Greint var frá því í morgun að líkur Vinstrisins á að ná þremur mönnum inn í borgarstjórn í Reykjavík færu vaxandi í nýuppfærðri kosningaspá Vísis. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin eru enn jöfn en sjálfstæðismenn eygja nú möguleikann á að ná sjöunda manninum inn, einum fleiri en keppinauturinn. Um er að ræða kosningaspá Baldurs Héðinssonar stærðfræðings sem byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Flestir oddvitar með keimlíka pólitíska ásjónu Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir ýmislegt áhugavert í uppfærðri kosningaspá. Áfram sé ákveðið einvígi milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sé aðeins að síga fram úr. Á meðan taki Miðflokkurinn stöðu Framsóknarflokks sem tapað hafi miklu fylgi og sé í myljandi hættu á að ná ekki manni inn. „Síðan eru stóru tíðindin þau að það mikla sóknarfæri sem hefur opnast á vinstri væng íslenskra stjórnmála, það er svona að byrja að fyllast með Vinstrinu sem er að ná töluvert góðri stöðu þar. Það eru auðvitað stóru tíðindin.“ Eiríkur segir að með prófkjörum og vali á framboðslista hafi mál hagast þannig að oddvitar flestra annarra flokka hafi keimlíka pólitíska ásjónu. Eiríkur segir það gera sérstöðu Vinstrisins miklu skýrari heldur en annars hefði verið, þrátt fyrir að Sósíalistaflokkurinn sé einnig í framboði. „Maður á von á því að vinstra fylgið finni sér einhvern farveg á einn stað og Vinstrið ætlar að verða sá farvegur. Það virðist vera.“ Hvernig sérðu fyrir þér meirihlutasamstarf? „Það er bara flókið að sjá það fyrir akkúrat núna. Samfylkingin hefur auðvitað verið meira og minna við völd í að verða 32 ár með stuttum hléum, þannig það eru margir sem vilja senda Samfylkinguna í einhverskonar leyfi, í orlof. Þannig það þrengist aðeins um það og þetta gæti bara orðið flókið.“ Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Gallup sem var gerð fyrri helming aprílmánaðar hefur 59 prósent vægi í nýjustu útgáfu spárinnar en könnun Maskína frá miðjum mars 41 prósent vægi. Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstrið Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Reykjavík Skoðanakannanir Borgarstjórn Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira
Greint var frá því í morgun að líkur Vinstrisins á að ná þremur mönnum inn í borgarstjórn í Reykjavík færu vaxandi í nýuppfærðri kosningaspá Vísis. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin eru enn jöfn en sjálfstæðismenn eygja nú möguleikann á að ná sjöunda manninum inn, einum fleiri en keppinauturinn. Um er að ræða kosningaspá Baldurs Héðinssonar stærðfræðings sem byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Flestir oddvitar með keimlíka pólitíska ásjónu Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir ýmislegt áhugavert í uppfærðri kosningaspá. Áfram sé ákveðið einvígi milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sé aðeins að síga fram úr. Á meðan taki Miðflokkurinn stöðu Framsóknarflokks sem tapað hafi miklu fylgi og sé í myljandi hættu á að ná ekki manni inn. „Síðan eru stóru tíðindin þau að það mikla sóknarfæri sem hefur opnast á vinstri væng íslenskra stjórnmála, það er svona að byrja að fyllast með Vinstrinu sem er að ná töluvert góðri stöðu þar. Það eru auðvitað stóru tíðindin.“ Eiríkur segir að með prófkjörum og vali á framboðslista hafi mál hagast þannig að oddvitar flestra annarra flokka hafi keimlíka pólitíska ásjónu. Eiríkur segir það gera sérstöðu Vinstrisins miklu skýrari heldur en annars hefði verið, þrátt fyrir að Sósíalistaflokkurinn sé einnig í framboði. „Maður á von á því að vinstra fylgið finni sér einhvern farveg á einn stað og Vinstrið ætlar að verða sá farvegur. Það virðist vera.“ Hvernig sérðu fyrir þér meirihlutasamstarf? „Það er bara flókið að sjá það fyrir akkúrat núna. Samfylkingin hefur auðvitað verið meira og minna við völd í að verða 32 ár með stuttum hléum, þannig það eru margir sem vilja senda Samfylkinguna í einhverskonar leyfi, í orlof. Þannig það þrengist aðeins um það og þetta gæti bara orðið flókið.“ Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Gallup sem var gerð fyrri helming aprílmánaðar hefur 59 prósent vægi í nýjustu útgáfu spárinnar en könnun Maskína frá miðjum mars 41 prósent vægi.
Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Gallup sem var gerð fyrri helming aprílmánaðar hefur 59 prósent vægi í nýjustu útgáfu spárinnar en könnun Maskína frá miðjum mars 41 prósent vægi.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstrið Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Reykjavík Skoðanakannanir Borgarstjórn Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira