Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 21. apríl 2026 06:47 Kötturinn stillir sér upp fyrir mynd. Í bakgrunn má sjá gjafir sem kettinum hafa borist frá fjarlægum löndum. vísir/lýður valberg Kötturinn Diego er með tugi þúsunda fylgjenda á Instagram um allan heim. Eigandi kattarins botnar ekkert í frægð hans og er að drukkna í gjöfum sem kötturinn fær sendar.
Landsmenn þekkja flestir köttinn Diego sem heldur til í Skeifunni. Færri vita þó af nafna hans, inniketti í Kópavogi sem státar af 83 þúsund fylgjendum á Instagram. Kötturinn er raunar með frægari Íslendingum á forritinu en hann skákar mörgum af okkar stærstu samfélagsmiðlastjörnum í fylgjendafjölda. Kópavogsbúinn Diego er með vinsælli samfélagsmiðlastjörnum landsins.vísir/hjalti Urrar á fugla og treður í sig nammi Eigandi kattarins botnar ekkert í frægðarsól Diego og veit hreinlega ekki hvers vegna hann vekur svo mikla athygi, en fylgjendafjöldinn hefur vaxið jafnt og þétt með árunum og eru aðdáendur hans búsettir um allan heim. „Lang mest í Bandaríkjunum, Bretlandi, Tælandi og Brasilíu,“ segir Ásdís Erla Þorsteinsdóttir, eigandi Diego. View this post on Instagram A post shared by Diego the Icelandic Tuxedo (@diegothetuxedo) Þó að Diego sé að mörgu leyti venjulegur köttur svipar hegðun hans að miklu leyti til hunds. Honum finnst svakalega gaman að sækja dót sem Ásdís kastar um heimilið og situr ósjaldan í gluggakistu og urrar á fugla. Aðdáendur Diego setja sig reglulega í samband við Ásdísi, senda henni skilaboð og gjafir. „Þetta er alls konar. Við höfum fengið taupoka, lyklakippur, myndir, málverk.“ Þetta er rosa mikið dót, hefuru pláss fyrir þetta allt? „Nei ég hef ekki pláss fyrir þetta allt,“ segir Ásdís hlæjandi. Hún segir fylgjendur kattarins senda mis furðuleg skilaboð. „Við höfum fengið alls konar skrítnar beiðnir. Ein manneskja sendi oft skilaboð á okkur og bað okkur um að baða hann og taka myndband af því.“ Svo sá ég að bangsi sem er eftirlíking af Diego var framleiddur og fólk keypti hann? „Já það voru tveir bangsar og í báðum tilfellum var takmarkað magn. Þannig það er því miður ekki hægt að fá bangann lengur en jú það var fullt af fólki sem keypti bangsann.“
Dýr Samfélagsmiðlar Kettir Kópavogur Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Sjá meira