Handbolti

Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensín­stöð

Valur Páll Eiríksson skrifar
Haukar-FH
Vísir/Anton Brink

Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn í Olís-deild karla í handbolta hefst á föstudagskvöldið kemur og af því tilefni efndi HSÍ í samstarfi við Olís til blaðamannafundar í dag.

Valur og FH munu etja kappi um Íslandsmeistaratitilinn. Valur lagði KA 3-0 í undanúrslitum en FH vann granna sína í Haukum 3-1.

Fundurinn í dag fór fram undir regnskýli við bensínstöð Olís við Álfheima.

Þjálfarar liðanna, þeir Ágúst Þór Jóhannsson, Val, og Sigursteinn Arndal, FH, og reynsluboltarnir Björgvin Páll Gústavsson og Ágúst Birgisson, svöruðu þar ýmsum spurningum fyrir einvígið, í beinu streymi á YouTube.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×