Mark ársins í Bestu deildinni komið? Sindri Sverrisson skrifar 23. apríl 2026 14:10 Liðsfélagar fagna Hrafni Tómassyni eftir neglu hans. Vísir/Sýn Sport Hrafn Tómasson heldur áfram að slá í gegn í Bestu deildinni í fótbolta því í dag skoraði KR-ingurinn stórkostlegt mark gegn ÍBV í Vestmannaeyjum.
Markið glæsilega má sjá hér að neðan en það skoraði Hrafn með föstu skoti vel utan teigs, efst í vinstra hornið, gjörsamlega óverjandi. Klippa: Draumamark Hrafns í Eyjum Markið skoraði Hrafn á 17. mínútu og kom þá KR í 2-0 í leiknum en staðan var orðin 4-0 þegar flautað var til hálfleiks. Hrafni var hins vegar skipt af velli eftir fyrri hálfleikinn, sennilega vegna meiðsla. Lesa má nánar um leikinn hér. Hrafn hefur eins og fyrr segir byrjað leiktíðina af miklum krafti og fékk mikið lof í Stúkunni eftir frammistöðu sína í 5-2 sigrinum gegn Þór í síðustu umferð. Hrafn, eða Krummi eins og hann er kallaður, átti að vera hluti af aðalliðshópi KR tímabilið 2024 en sleit hins vegar krossband í hné í fyrsta leik, gegn Fylki í Árbæ. Það var í annað skipti sem hann slítur krossband en eftir að hafa komist aftur á ferðina í fyrra var Krummi lánaður til Þróttar í Lengjudeildinni og var þar lykilmaður í liði sem var afar nálægt því að komast upp í Bestu deildina. „Þetta er strákur sem Vesturbærinn hefur beðið svolítið lengi eftir. Hann hefur lent í leiðinlegum meiðslum á ferli sínum. Hann fór á lán eftir krossbandaslit til Þróttar í fyrra og hefur fengið traustið í vetur. Hann hefur stimplað sig vel inn,“ sagði Vesturbæingurinn Halldór Árnason, fyrrverandi þjálfari Breiðabliks, í Stúkunni á dögunum.
Besta deild karla KR Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira