ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Sindri Sverrisson skrifar 24. apríl 2026 11:46 Grétar Áki Andersen er hættur sem þjálfari ÍR en menn greinir á um ástæður þess. Anton Brink Formaður handknattleiksdeildar ÍR hefur fundið sig knúinn til að senda út yfirlýsingu vegna umfjöllunar um ástæður starfsloka þjálfarans Grétars Áka Andersen.
Grétar Áki var aðalþjálfari kvennaliðs ÍR sem hafnaði í 4. sæti Olís-deildarinnar í vetur en féll svo úr leik gegn Fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Áður var hann aðstoðarmaður Sólveigar Láru Kjernæsted einn vetur. Í tilkynningu ÍR um brotthvarf Grétars Áka sagði að hann hefði sjálfur óskað eftir að láta af störfum. Þetta hefur verið dregið í efa í umfjöllun hlaðvarpsþáttarins Handkastsins sem nafngreindi ákveðna leikmenn liðsins og sagði þá hafa þrýst á stjórn handknattleiksdeildar ÍR að skipta Grétari Áka út, með þeim rökum að hann væri ekki nægilega stórt nafn til að laða til félagsins betri leikmenn. Taldi miðillinn sig hafa nægilega góðar heimildir til að setja þetta í loftið. Í tilkynningu Kristins Jóhannssonar, formanns handknattleiksdeildar ÍR, í dag segir hins vegar að þetta eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum. „Stjórn handknattleiksdeildar ÍR vill að fram komi að tilgreind atriði sem staðhæft var um í umfjöllun Handkastsins um aðdraganda starfsloka Grétars Áka eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum. Stjórnin stendur heilshugar að baki leikmönnum sínum og telur umfjöllunina hafa verið óvandaða, ómálefnalega og Handkastinu ekki til framdráttar. Að nafngreina leikmenn og bera á þá ósannaðar ásakanir er mikið ábyrgðarmál. Stjórn handknattleiksdeildar ÍR hvetur fjölmiðla til að sýna aðgát og ábyrgð í umfjöllun sinni, sérstaklega þegar um unga íþróttamenn er að ræða,“ segir í yfirlýsingunni og jafnframt að „allar ákvarðanir er varða þjálfarateymi félagsins eru teknar af stjórn handknattleiksdeildar ÍR. Slíkar ákvarðanir eru teknar með hagsmuni félagsins, leikmannahópsins og framtíð kvennaliðsins að leiðarljósi og eru alfarið á ábyrgð stjórnarinnar.“ Ekki hefur verið tilkynnt um eftirmann Grétars Áka. Uppfært kl. 14: Arnar Daði Arnarsson, eigandi Handkastsins, segir á Twitter að miðillinn standi við fréttina. Grétar Áki vildi ekki tjá sig um málið. 🪦- ÍR var að ná besta árangri kvennaliðsins frá upphafi - Formaður ÍR hefur beðið þjálfarann afsökunar á afsögninni- Þjálfaranum var tjáð að ákvörðun stjórnarinnar var tekin út frá fundum við leikmenn liðsins Handkastið stendur við allt sem sagt var um þetta mál🙏 pic.twitter.com/yxOdDwrryX— Arnar Daði Arnarsson (@arnardadi) April 24, 2026
Olís-deild kvenna ÍR Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira