„Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ Sindri Sverrisson skrifar 24. apríl 2026 14:46 Albert Brynjar Ingason segir ÍBV þurfa að gera mun betur ætli liðið að halda sér uppi í Bestu deildinni. Sýn Sport „Ef að þeir spila svona í sumar þá fara þeir beint niður,“ sagði Albert Brynjar Ingason ómyrkur í máli þegar hann ræddi um Eyjamenn, í Stúkunni á Sýn Sport Ísland, eftir 6-2 tap ÍBV gegn KR í Bestu deild karla. Hann segir einn mann ómissandi hjá ÍBV. „
Þetta var eins og 4. deildarlið gegn Bestudeildarliði í 32-liða úrslitum í bikarnum. Þetta er ein lélegasta frammistaða sem ég hef séð í mjög langan tíma, hjá liði í þessari deild,“ sagði Albert í Stúkunni en brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Stúkan - ÍBV eins og 4. deildarlið „KR-ingar voru mjög flottir og grimmir, tek ekkert af þeim, en það var enginn áhugi hjá Eyjaliðinu. Miðjan var alveg fáránleg, mjög slitin og alltaf pláss fyrir framan öftustu fjóra. Svo eru þeir 4-0 undir í hálfleik og þá kemur Filip Stuparevic inná. Hann haggast ekki. Þetta var ekki að fara að breytast neitt þar,“ sagði Albert. Hann átti erfitt með að finna eitthvað gott að segja um ÍBV og benti svo á það hve mikilvægur fyrirliðinn Alex Freyr Hilmarsson virtist vera. „Það eina jákvæða sem ég get sagt um Eyjaliðið er að Sesar Örn kom vel inn, með sitt fyrsta mark í efstu deild. Mér fannst hann flottur. En ef Alex Freyr er ekki inni á vellinum hjá Eyjaliðinu þá fer bara allt til fjandans. Þeir voru flottir á móti FH, svo fór hann af velli og þeir fengu strax á sig jöfnunarmark. Þeir voru fínir í upphafi leiks á móti Val, komust yfir, hann fór meiddur af velli og þeir misstu það niður. Svo var hann ekki með í þessum leik,“ sagði Albert en umræðuna má sjá hér að ofan.
Besta deild karla Stúkan ÍBV Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira