Handbolti

Viktor Gísli á­fram í stuði

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson gekk í raðir Barcelona frá Wisla Plock síðasta sumar.
Viktor Gísli Hallgrímsson gekk í raðir Barcelona frá Wisla Plock síðasta sumar. getty/Ruben De La Rosa

Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson varði 39 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig þegar Barcelona vann stórsigur á Bada Huesca, 42-25, í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Viktor hefur verið í góðum gír að undanförnu. Í síðustu tveimur deildarleikjum Barcelona varði hann rúmlega helming þeirra skota sem hann fékk á sig og í dag varði hann níu af skotunum 23 sem hann fékk á sig.

Emil Nielsen, markvörður danska landsliðsins, varði átta af þeim nítján skotum sem hann fékk á sig (42 prósent) og markvarslan var því með besta móti hjá Börsungum.

Eins og í flestum leikja sinna heima fyrir var Barcelona með mikla yfirburði í dag. Liðið var tíu mörkum yfir í hálfleik, 21-11.

Barcelona er með fullt hús stiga á toppi spænsku deildarinnar en liðið hefur unnið alla 26 leiki sína á tímabilinu.

Dika Mem var markahæstur hjá Barcelona í dag með sjö mörk. Ian Barrufet, Aleix Gómez og Daniel Fernández skoruðu fimm mörk hver.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×