Sagan skrifuð í Lúndunamaraþoninu: „Urðum vitni að einhverju ótrúlegu“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2026 15:15 Sabastian Sawe, fyrsti maðurinn sem hleypur maraþon á undir tveimur klukkustundum. getty/Alex Davidson Sabastian Sawe var í skýjunum eftir að hafa slegið heimsmetið í maraþoni í dag. Hann varð jafnframt fyrstur í sögunni til að hlaupa maraþon á undir tveimur klukkustundum.
Hinn keníski Sawe kom í mark í Lundúnamaraþoninu á einni klukkustund, 59 mínútum og þrjátíu sekúndum. Hann bætti heimsmet landa síns, Kelvins Kiptum, um rúmlega mínútu. „Mér líður vel. Ég er svo glaður. Þetta er eftirminnilegur dagur,“ sagði Sawe eftir að hann kom í mark. „Við byrjuðum hlaupið vel. Þegar leið á hlaupið fannst mér ég vera sterkur. Þegar ég nálgaðist endamarkið sá ég tímann og varð spenntur.“ Sawe hljóp fyrri hluta maraþonsins í dag á einni klukkustund og 29 sekúndum. Hann gaf enn meira í seinni hlutann og kom í mark á undir tveimur klukkustundum. Sawe var reyndar ekki sá eini sem afrekaði það í dag því Yomif Kejelcha frá Eþíópíu hljóp á 1:59:41 í sínu fyrsta maraþoni á ferlinum. Watch Sabastian Sawe 🇰🇪 run 1:59:30 to destroy the Marathon World Record in London!!🤯🔥First man ever to break 2 hours in a marathon.2. Yomif Kejelcha 🇪🇹 1:59:413. Jacob Kiplimo 🇺🇬 2:00:28All under the previous World Record.pic.twitter.com/g76PpMHkiG— Track & Field Gazette (@TrackGazette) April 26, 2026 Fjórfaldi Ólympíumeistarinn Sir Mo Farah átti vart orð til að lýsa afreki Sawes. „Við höfum beðið nógu lengi eftir að sjá mann hlaupa maraþon á undir tveimur tímum. Þetta hefur alltaf verið spurningin sem við höfum spurt okkur. Við urðum vitni að einhverju ótrúlegu,“ sagði Farah. Sawe hefur unnið öll fjögur maraþonin sem hann hefur tekið þátt í, þar af Lundúnamaraþonið í tvígang. Hann bætti sitt persónulega met um tvær mínútur og 23 sekúndur í dag. „Ég vil þakka áhorfendum fyrir að hvetja okkur áfram. Þeir hjálpa okkur mikið því án þeirra finnst okkur við ekki vera eins elskaðir. Þess vegna segi ég að það sem gerðist í dag er ekki bara fyrir mig heldur alla í London,“ sagði Sawe.
Hlaup Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira