„Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. apríl 2026 09:03 Ingvar Jónsson átti stóran þátt í því að Víkingur varð Íslandsmeistari 2021. Hann varði vítaspyrnu á ögurstundu í leik gegn KR í næstsíðustu umferðinni. sýn sport ísland Fræg vítavarsla Ingvars Jónssonar, sem hafði stór áhrif á baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla 2021, er til umfjöllunar í tíunda þætti Augnablikanna. Ingvar viðurkennir að það hefði verið hægt að reka hann út af áður en vítaspyrnan var tekin.
Víkingur og Breiðablik börðust um Íslandsmeistaratitilinn fyrir fimm árum. Í næstsíðustu umferðinni mætti Víkingur KR á Meistaravöllum á meðan Breiðablik sótti FH heim í Kaplakrika. Blikar töpuðu 1-0 fyrir FH-ingum en Víkingar unnu KR-inga, 1-2, eftir mikla dramatík. Upp úr sauð undir lok leiksins þegar vítaspyrna var dæmd á Kára Árnason. Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, og Þórður Ingason, varamarkvörður Víkings, voru reknir af velli fyrir handalögmál. Þegar loks hafði verið greitt úr málunum tók Pálmi Rafn Pálmason vítaspyrnuna en Ingvar varði og tryggði Víkingum afar dýrmæt þrjú stig. „Hann hefði getað hent fleiri rauðum spjöldum á loft. Hann hefði getað hent mér út af fyrir að reyna að bakka minn mann [Þórð] upp og þá hefði ekki verið neinn markvörður eftir inni á vellinum. Þetta var eins mikil dramatík og það verður. Allt undir og full stúka,“ sagði Ingvar þegar hann rifjaði atburðarrásina ótrúlegu í Vesturbænum 2021 upp. Klippa: Augnablikin - Vítavarsla í Vesturbænum Henry Birgir Gunnarsson lýsti leiknum sem situr í minningunni. „Það var alls ekkert auðvelt að vera lýsandi akkúrat á þessu augnabliki því maður vissi eiginlega ekki hvað var að gerast. Það var svo mikið havarí í gangi, víti, spjallað saman, menn farnir að slást úti um allt og maður var að reyna að horfa út um allt. Átti að dæma á þetta? Hvað er hann að fara að dæma?“ sagði Henry. „Svo man ég mjög sterkt að margir voru furðu lostnir þegar eftir allt havaríið var ákveðið að dæma vítaspyrnu. Þá sprakk allt. Þegar dómurinn lá endanlega fyrir var eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir. Helmingurinn fagnaði og hinn helmingurinn gjörsamlega umturnaðist af bræði. Víkingarnir héldu eflaust það versta þá en í minningunni var eins og það hefði tekið svona tíu mínútur að greiða úr allri þessari flækju því það var svo mikið í gangi. En þetta var ótrúlegt augnablik,“ bætti Henry við. Stuðningsmenn Víkings fagna í leiknum eftirminnilega á Meistaravöllum 2021.vísir/hulda margrét Víkingur var með eins stigs forskot á Breiðablik fyrir lokaumferðina. Þar unnu bæði lið sína leiki og Víkingar stóðu uppi sem Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í þrjátíu ár. Ingvar hefur síðan tvisvar sinnum í viðbót orðið Íslandsmeistari með Víkingi. Brot úr „Vítavörslu í Vesturbænum“, tíunda þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þáttinn í heild sinni má nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík KR Augnablikin Tengdar fréttir Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum. 26. apríl 2026 09:31 Meiddist tveimur vikum fyrir EM: „Er þetta raunverulegt? Er ég að fara að keppa?“ Í áttunda þætti Augnablikanna er sigur Eyglóar Fanndal Sturludóttur á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í apríl í fyrra tekinn fyrir. 20. apríl 2026 09:02 Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Inngrip Kjartans Henrys Finnbogasonar í baráttuna um danska meistaratitilinn í fótbolta 2018 er til umfjöllunar í sjöunda þætti Augnablikanna. 19. apríl 2026 09:02 „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Mögnuð sigurkarfa Kára Jónssonar fyrir Hauka gegn Keflavík í úrslitakeppninni í körfubolta karla 2018 er rifjuð upp í sjötta þætti Augnablikanna. 13. apríl 2026 09:03 Draumamark Atla gegn Motherwell: „Ég man ekkert hvað kom út úr mér“ Eftirminnilegt sigurmark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna gegn Motherwell sumarið 2014 er til umfjöllunar í fimmta þætti Augnablikanna. 12. apríl 2026 09:00 Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona. 6. apríl 2026 09:03 Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin. 5. apríl 2026 08:00 Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00 Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02 Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö Íslenski boltinn Læti í göngunum eftir leik Íslenski boltinn KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Íslenski boltinn „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Enski boltinn Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Íslenski boltinn Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Íslenski boltinn Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið Íslenski boltinn „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö „Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Sjáðu markið sem kom Þrótti í Bestu deildina „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið „Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 0-1 | Margrét tryggði Þór/KA dýrmæt stig á Hlíðarenda „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Læti í göngunum eftir leik Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Sjáðu trylltan fögnuð Víkinga þegar titillinn var í höfn og viðtal við hetjuna Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Sjá meira
Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum. 26. apríl 2026 09:31
Meiddist tveimur vikum fyrir EM: „Er þetta raunverulegt? Er ég að fara að keppa?“ Í áttunda þætti Augnablikanna er sigur Eyglóar Fanndal Sturludóttur á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í apríl í fyrra tekinn fyrir. 20. apríl 2026 09:02
Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Inngrip Kjartans Henrys Finnbogasonar í baráttuna um danska meistaratitilinn í fótbolta 2018 er til umfjöllunar í sjöunda þætti Augnablikanna. 19. apríl 2026 09:02
„Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Mögnuð sigurkarfa Kára Jónssonar fyrir Hauka gegn Keflavík í úrslitakeppninni í körfubolta karla 2018 er rifjuð upp í sjötta þætti Augnablikanna. 13. apríl 2026 09:03
Draumamark Atla gegn Motherwell: „Ég man ekkert hvað kom út úr mér“ Eftirminnilegt sigurmark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna gegn Motherwell sumarið 2014 er til umfjöllunar í fimmta þætti Augnablikanna. 12. apríl 2026 09:00
Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona. 6. apríl 2026 09:03
Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin. 5. apríl 2026 08:00
Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00
Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02
Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02