Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson skrifar 26. apríl 2026 17:01 Á stofnfundi húsfélags í stóru fjölbýlishúsi var með semingi samþykkt að eigendur fimm þakíbúða, dýrustu eignanna í húsinu, fengju neitunarvald á húsfélagsfundum. Það var skilyrði þeirra fyrir þátttöku. Afleiðingin hefði átt að vera fyrirsjáanleg: húsið hefur með árunum drabbast niður, því einhverjir eigendur þakíbúðanna neita ávallt að taka þátt í nauðsynlegu viðhaldi eignarinnar. Í einfaldri mynd er þetta sú skipan sem ríkir í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Neitunarvaldið er dragbítur kerfisins, birtingarmynd valdahlutfallanna í heiminum eftir síðari heimsstyrjöldina árið 1945, fyrir rúmum átta áratugum. Í öryggisráðinu fara sem kunnugt er fimm ríki með neitunarvald sem gerir þeim kleift að stöðva allar afgerandi ákvarðanir, jafnvel þegar yfirgnæfandi meirihluti aðildarríkja er sammála um aðgerðir. Fyrirkomulagið var samþykkt á sínum tíma að kröfu stórveldanna, sem hefðu að öðrum kosti ekki komið að stofnun samtakanna. Með tímanum hefur neitunarvaldið gert Sameinuðu þjóðirnar nánast áhrifalausar þegar kemur að meginhlutverki þeirra: að viðhalda friði og öryggi í heiminum. Ályktanir öryggisráðsins breyta litlu sem engu. Heimildamyndin The Veto hefur nýlega vakið athygli fyrir að varpa skýru ljósi á þennan vanda. Þegar mest á reynir er valdakerfið sjálft Akkilesarhæll þessara mikilvægu alþjóðasamtaka. Raunverulegar umbætur á kerfinu eru nær útilokaðar, enda krefðust þær samþykkis þeirra ríkja sem fara með neitunarvaldið. Þær þyrftu að afsala sér eigin forréttindum. Það gerist ekki. Samt er annað veifið rætt um „raunhæfar leiðir“ til úrbóta. Þá er ekki verið að tala um að breyta kerfinu, heldur að milda afleiðingar þess. Nefnt hefur verið að ríki skuldbindi sig sjálfviljug til að beita ekki neitunarvaldi í alvarlegum málum, svo sem þjóðarmorðum, stríðsglæpum og glæpum gegn mannkyni. Þá hefur verið kallað eftir auknum sýnileika og opinberum rökstuðningi í hvert sinn sem neitunarvaldi er beitt. Einnig hefur verið lagt til að færa mál yfir á vettvang allsherjarþingsins þegar öryggisráðið lamast. Slíkar breytingar gætu haft einhver áhrif, en breyta ekki grundvallaratriðinu: að neitunarvaldið er tromp sem fáeinar þjóðir hafa á hendi, aðrar ekki. Þær halda fast í spilin þótt þær viti vel að það var vitlaust gefið frá upphafi. Þessi veruleiki birtist skýrt í vali á aðalframkvæmdastjóra, sem nú stendur fyrir dyrum. Formlega er hann skipaður af allsherjarþinginu, en í reynd ræður öryggisráðið úrslitum. Enginn kemst í embættið án samþykkis stórveldanna, sérstaklega Bandaríkjanna. Konur hafa aldrei gegnt embætti aðalframkvæmdastjóra og því er sérstaklega horft til kvenna, ekki síst frá rómönsku Ameríku, þar sem samkvæmt gamalli hefð er nú komið að þeim heimshluta. En þar er ekki verið að velja hæfasta einstaklinginn, heldur þann sem er stórveldunum þóknanlegastur. Tvær konur eru meðal fjögurra frambjóðenda, Michelle Bachelet frá Chile og Rebeca Grynspan frá Kosta Ríka, en einnig gefa kost á sér Rafael Grossi frá Argentínu og Macky Sall frá Senegal. Framtíð Sameinuðu þjóðanna er ekki sérlega björt. Hún ræðst af því hvort ríki heims halda áfram að hafa hagsmuni af því að halda samtökunum gangandi þrátt fyrir augljósa veikleika, stöðnun og sáralitlar líkur á umbótum. Líklegasta sviðsmyndin er hægfara jaðarsetning: að Sameinuðu þjóðirnar verði áfram til staðar og sinni mikilvægum verkefnum, en verði í auknum mæli sniðgengnar þegar mest á reynir. Án þeirra væri heimurinn þó verri. Það er ekki lítið. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar