Tími undanbragða er liðinn – Mætir ráðherra með svör? Hjálmar Hallgrímsson skrifar 27. apríl 2026 15:15 Það var mikill hiti og sterk samstaða á fjölmennum íbúafundi Grindvíkinga þann 22. apríl. Fólk er orðið langþreytt á óvissunni og þeirri forræðishyggju sem stjórnvöld hafa sýnt af sér í málefnum bæjarins. Það voru því mikil vonbrigði að forsætisráðherra skyldi ekki sjá sér fært að mæta á þennan mikilvæga fund til að hlusta og svara ákalli íbúanna milliliðalaust. Ályktun íbúafundarins var afdráttarlaus: Grindvíkingum er algjörlega treystandi til að taka ákvarðanir um eigið líf. Við krefjumst þess að jafnræði verði tryggt í húsnæðismálum og að öllum, óháð fjölskyldugerð, verði gert kleift að flytja heim aftur án mismununar. Hugmyndir um annað eru óásættanlegar atlögur að tilvistarrétti bæjarins. Forsætisráðherra hefur nú boðað komu sína á fund hjá íbúasamtökunum Járngerði í vikunni. Við þurfum ekki innantómar yfirlýsingar um samkennd, en við höfum fullar væntingar um að hún mæti með tilbúin svör. Það er lágmarkskrafa okkar að hún komi með útfærð plön Þórkötlu í farteskinu og tryggi að jafnræðisreglan verði virt. Við þurfum svör til að geta tekið ákvarðanir um næsta haust og okkar framtíð. Tími undanbragða er liðinn. Höfundur er bæjarfulltrúi í Grindavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Það var mikill hiti og sterk samstaða á fjölmennum íbúafundi Grindvíkinga þann 22. apríl. Fólk er orðið langþreytt á óvissunni og þeirri forræðishyggju sem stjórnvöld hafa sýnt af sér í málefnum bæjarins. Það voru því mikil vonbrigði að forsætisráðherra skyldi ekki sjá sér fært að mæta á þennan mikilvæga fund til að hlusta og svara ákalli íbúanna milliliðalaust. Ályktun íbúafundarins var afdráttarlaus: Grindvíkingum er algjörlega treystandi til að taka ákvarðanir um eigið líf. Við krefjumst þess að jafnræði verði tryggt í húsnæðismálum og að öllum, óháð fjölskyldugerð, verði gert kleift að flytja heim aftur án mismununar. Hugmyndir um annað eru óásættanlegar atlögur að tilvistarrétti bæjarins. Forsætisráðherra hefur nú boðað komu sína á fund hjá íbúasamtökunum Járngerði í vikunni. Við þurfum ekki innantómar yfirlýsingar um samkennd, en við höfum fullar væntingar um að hún mæti með tilbúin svör. Það er lágmarkskrafa okkar að hún komi með útfærð plön Þórkötlu í farteskinu og tryggi að jafnræðisreglan verði virt. Við þurfum svör til að geta tekið ákvarðanir um næsta haust og okkar framtíð. Tími undanbragða er liðinn. Höfundur er bæjarfulltrúi í Grindavík.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar