„Það þarf að taka í handbremsuna strax“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. apríl 2026 16:42 Hildur Björnsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gagnrýnir rekstur meirihlutans en í nýjum ársreikningi Reykjavíkurborgar kom fram að rekstur A-hluta var neikvæður um ríflega fimm milljarða.
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta ársreiknings Reykjavíkurborgar var jákvæð um átta milljarða króna. Neikvæð niðurstaða A-hlutans, sem telst til starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð af skatttekjum, er sögð vera vegna mikillar hækkunar lífeyrisskuldbindinga auk þess sem mikil verðbólga og óvissa á atvinnumarkaði leiddu til hægari vaxtar útsvarsgreiðslna. „Það er einfalt lögmál í öllum rekstri, hvort sem er heimilisrekstur eða annar rekstur, þú eyðir ekki um efni fram. En þetta virðist vefjast fyrir mönnum og enn eina ferðina fara útgjöld borgarinnar langt umfram tekjur. Það þarf að taka í handbremsuna strax. Fækka millistjórnendum, fækka verkefnum, leggja niður svið og stíga skref sem raunverulega hreyfa nálina,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, sem var samþykkt í borgarstjórn í byrjun desember, gerði ráð fyrir 3,4 milljarða króna rekstarafgangi í A-hluta. Hildur segir að borgarsjóður hafi til langs tíma verið fjármagnaður með lántökum og framlagi frá dótturfélögum borgarinnar, hverra tekjur byggja á gjaldtöku af borgarbúum. „Við þurfum nauðsynlega að ráðast í allsherjarúttekt á borgarkerfinu. Það verður verkefni næsta meirihluta að ná tökum á fjármálum borgarinnar og tryggja að þetta gerist ekki aftur. Það er algerlega óásættanlegt að afkoma borgarinnar versni um nærri sex milljarða á þeim örfáu vikum sem liðnar eru frá því að borgarstjóri birti síðustu útkomuspá í desember síðastliðnum“, segir hún. Orkuveitan krúnudjásnið Hildur tekur fram að það geti tekið tíma að vinda ofan af slíkri rekstrarniðurstöðu. Það gangi ekki að borgin sé leiðandi í launaþróun í landinu og að rekstrargjöldin hækki ítrekað langt umfram verðbólgu. Hún bendir á að Reykjavíkurborg virðist hafa misst sjónar af grunnhlutverki sínu síðustu ár og nefnir sem dæmi rekstur Orkuveitunnar. „Orkuveitan er krúnudjásn borgarinnar og hún á að vera það áfram. Samfylkingin hefur hins vegar misst sjónar af hlutverki félagsins og leitt það út í áhætturekstur í samkeppni við einkaaðila. Við eigum að vinda ofan af því,“ segir hún. Selja eigi bæði Ljósleiðarann og Carbfix og nýta þann ávinning til að greiða niður skuldir og ráðast í frekara innviðaátak. „ Orkuveitan á að vera í eigu Reykjavíkurborgar og sinna því hlutverki sem henni var ætlað í upphafi, að sjá fólki og fyrirtækjum fyrir vatni, orku og fráveitu á hagstæðum kjörum. Samhliða eigum við að nýta tækifærin til frekari raforkuvinnslu, nýta jarðhitasvæðin og ráðast að innviðaskuldinni í veitukerfunum.“
Reykjavík Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira