Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Valur Páll Eiríksson skrifar 27. apríl 2026 22:02 Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var að vonum glaður með 4-2 sigur sinna manna á Stjörnunni á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld. Valsmenn eru á töluverðri siglingu eftir erfiða byrjun.
Valur komst þrisvar yfir í leiknum en Stjarnan jafnaði tvisvar í fyrri hálfleik. Garðbæingar stýrðu þá ferðinni eftir þriðja mark Vals snemma í þeim síðari en tókst illa að finna lausnir gegn fimm manna vörn gestanna, sem þeir breyttu í í hléi. „Þetta var geggjað, æðislegt. Frábær leikur og tvö góð fótboltalið. Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik og færi á báða bóga. Þetta var stórskemmtilegt. Í seinni hálfleik breytum við aðeins varnarlega og þéttum raðirnar. Mér fannst það heppnast helvíti vel,“ segir Hermann. „Vinnuframlagið hjá liðinu og hugarfarið, það var rosalegur sigurvilji hérna í dag.“ Val var spáð sjötta sæti víða fyrir mót og liðið gagnrýnt eftir tap fyrir KR í bikarnum og fyrir Þór á heimavelli í fyrstu umferð. Því var velt upp hvaða vegferð liðið væri á. Hermann segir liðið vera að svara fyrir sig. „Þetta er eina svarið sem við getum gefið, það er inni á vellinum. Liðið, eins og allir vita, er að stilla sig saman eftir erfiðan vetur. Við vorum aldrei að fara að toppa í upphafi móts en þetta ógnarsterk byrjun hjá okkur engu að síður.“ View this post on Instagram A post shared by Vísir (@visir.is) Hermann var þá heldur ófrýnilegur að sjá. Með brunasár víða á andlitinu. Það var vegna eldamennsku fyrir sína menn um helgina. „Á laugardaginn ákvað ég að elda fyrir Valsliðið, kjúkling og sætar kartöflur. Ég var með einhvern risa ofn og ákvað að opna og það kom svona rosalega heit gufan framan í mig. Ég brenndi á mér hálft andlitið en það var þess virði því þeir sýndu það í dag hérna að þessi orka skilaði sér,“ „En ég fer ekki aftur inn í eldhúsið,“ segir Hermann hlæjandi.
Valur Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Sjá meira