Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Eiður Þór Árnason skrifar 27. apríl 2026 22:08 Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur. Sýn/Ívar Fannar Ragnar Freyr Ingvarsson læknir sakar framkvæmdastjóra á Landspítala um ósannindi og segir uppsögn sína verða úrlausnarefni dómstóla. Honum var nýlega sagt upp störfum á spítalanum og var hlutastarf hans lagt niður með vísan til rekstrarhagræðingar.
Ragnar telur að um ólögmæta uppsögn sé að ræða og hyggst láta reyna á málið fyrir dómstólum en hann er formaður Læknafélags Reykjavíkur. Stjórn félagsins hefur sömuleiðis gefið út að hún telji gjörninginn ólögmætan. Ragnar segir að í bréfi sem honum hafi borist á föstudag frá Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala, sé fullyrt að Ragnari hafi ekki verið sagt upp störfum í símtali þeirra þann 8. apríl heldur einungis verið boðaður á fund í tengslum við fyrirhugaða uppsögn. Ragnar segir þetta rangt. „Hann var alveg skýr um að það væri verið að leggja niður starfið mitt og mér því sagt upp. Aðspurður sagði hann ríka aðhaldskröfu vera á spítalanum. Það veit Rafn Benediktsson mæta vel þó hann kjósi að segja aðra sögu. Hann er skýrmæltur maður og boðskapurinn stuttur og hnitmiðaður eins hans er von og vísa,“ segir Ragnar í færslu á Facebook-síðu sinni. Þá hafnar Ragnar því að honum hafi verið boðið aukið starfshlutfall í umræddu símtali líkt og Rafn hafi fullyrt. „Um slíkt var aldrei rætt. Fréttir af þessu las ég fyrst í fjölmiðlum daginn eftir.“ Ekki náðist í Rafn við vinnslu fréttarinnar og verður hún uppfærð ef svör berast. Í afriti af bréfi hans til Ragnars sem hinn síðarnefndi deilir segir að læknirinn hafi um tíma verið í launalausu leyfi frá spítalanum. Þá kemur fram að bréfið hafi verið sent með aðkomu lögfræðings hjá Mörkinni lögmannsstofu. „Það er ótrúlegt að verða vitni að framferði stjórnenda Landspítala í minn garð,“ segir Ragnar. „Eftir allt sem á undan er gengið, farsælt starf og samvinnu með frábæru samstarfsfólki síðasta áratuginn. Að leggjast svo lágt að segja ósatt til að réttlæta gjörðir sínar. Að réttlæta ólögmæta uppsögn. Réttara hefði verið að biðjast afsökunar á þessu mistökum og axla ábyrgð. Af því hefði allavega verið einhver sómi.“ Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira