Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 29. apríl 2026 19:26 Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir marga íbúa sveitarfélagsins upplifa sig eins og rispaða plötu þegar þeir tala um vegina og fjarskiptaöryggi. Það sé þeim alltaf efst í huga og verði að bæta til tryggja öryggi. Vísir/Bjarni Starlink-tengingu hefur nú verið komið fyrir í skólabíl á Patreksfirði af öryggisástæðum. Hvorki foreldrum né sveitarstjórn þótti forsvaranlegt að daglega væri ekið með börn langa vegarkafla án símasambands.
Fjölmörg börn sem búsett eru á Patreksfirði og víða um Barðaströnd sækja nám við Patreksskóla en sérstakur skólabíll ekur með börnin til og frá skóla sem eiga heima aðeins lengra frá. Bílstjóri skólabílsins, sem jafnframt er í björgunarsveitinni, sagði í samtali við fréttastofu að börnin sem ættu heima lengst frá skólanum færu með skólabílnum í kringum hundrað og tíu kílómetra daglega en ekkert samband er á stórum hluta leiðarinnar. Þá sé Tetra-kerfið heldur ekki eins og best verður á kosið. Tetra er talstöðvarkerfið sem notað er af viðbragðsaðilum á Íslandi en Starlink veitir netsamband með aðstoð gervihnatta. Fleiri svæði að detta út Á umræddu svæði voru fjarskiptin ekki góð fyrir en Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar segir að gráu hafi verið bætt ofan á svart þegar fjarskiptafyrirtækin hófu að loka 2G og 3G símaþjónustu. „Okkur líður stundum eins og við séum rispuð plata þegar við tölum um lítið annað en vegina hérna í kring og að sama skapi um fjarskiptamálin því þau eru í lamasessi og við finnum breytingu núna þegar verið er að taka senda úr sambandi að það eru fleiri staðir þar sem þú nærð engu sambandi og það eru svæði bara eins og hérna inni í Patreksfirði sem skólabíllinn keyrir hér daglega sem er ekki í símasambandi.“ Foreldrar voru orðnir áhyggjufullir Eftir að hafa þrýst á ríkisvaldið án árangurs var ákveðið að ganga sjálf í málið. „Við í samstarfi við Símann höfum látið setja upp Starlink-búnað í skólabílnum þannig að þau séu í öruggu símasambandi á leið sinni frá Barðaströnd yfir á Patreksfjörð.“ Er ekki einhver sögn í því að þið séuð að koma Starlink fyrir í skólabílnum? Af hverju er ekki hægt að laga þetta? „Já, það er von þú spyrjir, við höfum ítrekað og lengi bent á að þetta sé mikið öryggismál að þetta sé í lagi og þetta hefur ekki verið lagað og við sjáum ekki fram á að það verði gert á næstunni þannig að þá verðum við einfaldlega að grípa málið og finna lausnir.“ Hafa margir foreldrar lýst áhyggjum sínum? „Já, þau hafa gert það ítrekað, lýst yfir áhyggjum sínum og heimastjórnir Barðastrandar og Rauðastrandarhrepps hafa gert það líka, hafa bent á þetta því þetta er mál sem skiptir okkur öll mjög miklu máli.“
Vesturbyggð Vegagerð Umferðaröryggi Fjarskipti Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira