Handbolti

Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil við­brögð í upp­hafi“

Sindri Sverrisson skrifar
Ulrik Wilbek hlaut fjölda verðlauna sem landsliðsþjálfari Dana.
Ulrik Wilbek hlaut fjölda verðlauna sem landsliðsþjálfari Dana. Getty

Ulrik Wilbek, fyrrverandi landsliðsþjálfari Danmerkur og maðurinn sem sagður var hafa reynt að bola Guðmundi Guðmundssyni úr því starfi, hefur sjaldnast viljað veita innsýn inn í einkalíf sitt en gerði undantekningu á því í vikunni.

Wilbek er orðinn 68 ára gamall en hann stýrði dönsku handboltalandsliðunum um árabil. Fyrst kvennalandsliðinu frá 1992-97 og svo karlalandsliðinu frá 2005-14.

Í viðtali við Ekstra Bladet talar Wilbek í fyrsta sinn opinberlega um samband sitt við Louise Kamstrup, sem er 31 ári yngri en þessi fyrrverandi borgarstjóri í Viborg. Kamstrup var einmitt starfsmaður í ráðhúsinu.

Áður var Wilbek lengi í sambandi með Susanne Munk og voru þau mjög þekkt í Danmörku enda miklar handboltastjörnur bæði tvö en sambandinu lauk sumarið 2024. Hálfu ári síðar kom fram að Wilbeck og Kamstrup hefðu tekið saman og vakti aldursmunurinn mikla athygli.

Höfum það gott og það er mikilvægast

„Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi vegna aldursmunarins en ég vil ekki fara út í það hvenær við kynntumst,“ sagði Wilbek við Ekstra Bladet. Hann útskýrði svo hvers vegna hann hefur ekki viljað tjá sig opinberlega um sambandið.

„Það myndi allt saman bara gera aðrar manneskjur leiðar. Það vil ég ekki. Ég get bara sagt að ég hef það gott núna og er í sambandi sem lætur suma hugsa með sér „hættu nú, þetta er mikill aldursmunur“. Já, það er rétt en við höfum það gott. Það er nú mikilvægast,“ sagði Wilbek.

Ulrik Wilbek ræðir við Guðjón Val Sigurðsson og Sigfús Sigurðsson, á Ólympíuleikunum í Peking 2008 þar sem Ísland endaði á að spila til úrslita við Frakka og vinna silfurverðlaun.VÍSIR/VILHELM

Gafst snemma upp á að tjá sig um einkalífið

Þá sagðist hann snemma hafa tileinkað sér það að ræða ekki um sitt einkalíf opinberlega, eftir að blaðamenn Séð og heyrt í Danmörku heimsóttu hann og Munk á sínum tíma, til að fjalla um parið og heimili þeirra. Ekkert hefði verið spurt út í íþróttina sem þau unnu við nema hvað Munk fékk spurningu um hve mörg mörk hún hefði skorað. Þau hefðu nú ekki verið mörg þar sem hún var jú markvörður.

Wilbek vann heims- og ólympíumeistaratitil með kvennalandsliði Danmerkur á tíunda áratug síðustu aldar, auk tveggja Evrópumeistaratitla, og tvo Evrópumeistaratitla með karlaliðinu auk fleiri verðlauna, áður en hann hætti þjálfun og var leystur af hólmi af Guðmundi. Hann var svo sakaður um að grafa undan Guðmundi á Ólympíuleikunum 2016, sem íþróttastjóri danska handknattleikssambandsins, en undir stjórn Guðmundar urðu Danir svo Ólympíumeistarar og lét Wilbek í kjölfarið af störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×