Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Smári Jökull Jónsson skrifar 2. maí 2026 13:25 Donald Trump forseti Bandaríkjanna segist ekki þurfa samþykki þingsins fyrir stríðsrekstrinum í Íran. Vísir/Getty Donald Trump segist ekki þurfa leyfi frá Bandaríkjaþingi fyrir stríðsrekstrinum í Íran þar sem honum sé í raun lokið. Hann er ekki ánægður með stöðu mála í samningaviðræðum og segir að Bandaríkjamenn muni ekki fara of snemma frá Íran.
Frestur Donald Trump forseta Bandaríkjanna til að fá samþykki Bandaríkjaþings fyrir stríðsrekstrinum í Íran rann út í gær. Í bréfi sem Trump sendi þinginu í gær tilkynnti hann að stríðsrekstrinum í Íran hafi í raun lokið þegar samið var um vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran í byrjun apríl sem þýði að samþykki þingsins fyrir stríðsrekstri sé óþarft. Samkvæmt lögum sem sett voru árið 1973 þarf forseti að fá samþykki þings fyrir áframhaldandi stríðsrekstri sextíu dögum eftir að tilkynning um slíkan rekstur barst. Ekkert langtíma fríðarsamkomulag er í gildi á milli landanna og hersveitir Bandaríkjanna enn í viðbragðsstöðu. Í bréfi Trump til þingsins segir hann að engar skotárásir hafi átt sér stað á milli Írans og Bandaríkjanna síðan 7. apríl og stríðsrekstri því lokið. „Við ætlum að gera hlutina almennilega“ Samkvæm íranska ríkismiðlinum IRNA var beiðni um viðræður við Bandaríkjamenn send til pakistanskra miðlunaraðila. Óljóst er hvort beiðnin hafi borist til Bandaríkjanna. „Við áttum samtal við Íran. Sjáum hvað setur, ég myndi segja að ég sé ekki mjög ánægður,“ sagði Trump og bætti við að erfitt hafi reynst að ná samkomulagi þar sem teiðtogar Íran væru ruglaði eftir að margir valdamiklir menn hafa látist í stríðinu. Trump segist hafa fengið upplýsingar um möguleika sína frá yfirstjórn hersins á fimmtudag og tillögur þeirra væru allt frá því að „sprengja helvítið úr þeim“ til þess að „ná samkomulagi“. „Þeir eru ekki að koma með samkomulag sem við þurfum. Við ætlum að gera hlutina almennilega, við ætlum ekki að fara snemma og eiga síðan í vandræðum aftur eftir þrjú ár.“
Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Tengdar fréttir Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. 30. apríl 2026 13:17 Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Saka ríkisstjórnina um svik Innlent Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Innlent Fleiri fréttir Lést af hundaæði eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér Sjá meira
Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. 30. apríl 2026 13:17