Formúla 1

McLaren með bestu sprettina í Miami

Ágúst Orri Arnarson skrifar
McLaren mennirnir tóku topp tvö sætin í sprettkeppninni.
McLaren mennirnir tóku topp tvö sætin í sprettkeppninni. Mark Sutton - Formula 1/Formula 1 via Getty Images

Lando Norris vann sprettkeppni Formúlu 1 kappakstursins í Miami og liðsfélagi hans hjá McLaren, Oscar Piastri, varð annar.

Formúlan er að hefjast aftur eftir fimm vikna hlé vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum og McLaren ætlar greinilega að gera sig gildandi í titilbaráttunni.

Norris var á ráspól og vann sprettinn með yfirburðum en Piastri náði að taka annað sætið af Charles Leclerc sem hafði ekið Ferrari bíl sínum á undan.

Efstu átta menn sprettkeppninnar. formula 1

Ekki gekk vel hjá efsta manni heimslistans, Kimi Antonelli hjá Mercedes, hann endaði vissulega bara í fjórða sæti en féll svo niður í sjötta sæti fyrir reglubrot.

Liðsfélagi hans hjá Mercedes, George Russell, tók þá fjórða sætið og saxaði forskot Antonelli á heimslistanum niður í sjö stig.

Max Verstappen hjá Red Bull sló Lewis Hamilton hjá Ferrari út úr fimmta sætinu.

Með sigrinum færist Norris nær efstu mönnum heimslistans en þar eru Antonelli og Russell enn með ágætis forystu. 

Tímataka fyrir kappakstur morgundagsins í Miami fer fram í kvöld klukkan 19:55, í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×