Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Smári Jökull Jónsson skrifar 3. maí 2026 13:15 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Donald Trump forseti Bandaríkjanna. Vísir/Lýður Valberg/Getty Utanríkisráðherra telur brotthvarf þúsunda hermanna Bandaríkjanna frá Þýskalandi ekki veikja NATO og ólíklegt að ákvörðunin hafi bein áhrif á Ísland. Það trufli samskipti þjóðarleiðtoga að Bandaríkin hafi farið í stríð við Íran án þess að ráðfæra sig við sína bandamenn.
Donald Trump tilkynnti fyrir helgi að þúsundir hermanna Bandaríkjanna í Þýskalandi yrðu kallaðir heim. Þetta var eftir að Friedrich Merz kanslari Þýskalands sagði að leiðtogar Írans væru að niðurlægja Bandaríkin en Trump hefur verið ósáttur með það sem honum finnst vera lítil aðstoð bandamanna í Evrópu við að opna Hormússund. Utanríkisráðherra segir Þjóðverja hafa verið undir það búna að hermönnum Bandaríkjanna í Þýskalandi kynni að fækka. „Það er rétt að hafa í huga, og þess vegna er þetta kannski ekki alveg skýrt ennþá, að liðsafli Bandaríkjanna í Þýskalandi varðar ekki síst öryggishagsmuni Bandaríkjanna sjálfra," sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Herstöðvar sem þar eru, hvort sem þær eru í Ramstein eða á öðrum stöðum, þær gegna lykilhlutverki varðandi verkefni og aðgerðir til að mynda í Mið-Austurlöndum, í Afríku og auðvitað Evrópu,“ bætti Þorgerður við. „Evrópa þarf að vera sjálfbærari um varnir“ Haft var eftir talsmanni NATO í gær að bandalagð væri að vinna með Bandaríkjamönnum að því að skilja smáatriðin í ákvörðun þeirra um herafla í Þýskalandi. „Bandaríkin fóru í þetta stríð við Íran án þess að ráðfæra sig eða eiga samtal við sína helstu bandamenn innan NATO og auðvitað er það að trufla að einhverju leyti.“ „Stóra myndin er sú að Evrópa þarf að vera sjálfbærari um varnir, þarf að rísa upp og hún er að gera það. Öll NATO ríkin sem tilheyra Evrópu eru að gera það,“ segir Þorgerður Katrín og bætir við að það sé þýðingarmest til lengri tíma litið. Veikir ekki NATO og engin bein áhrif á Ísland Hún segir það ekki mega gerast að Atlantshafsbandalagið veikist. Auðvitað sé best að menn leysi deilur sem þessar með samtölum og Íslendingar þurfi að sýna að þeir standi við sínar skuldbindingar. „Ég tel, og við sem erum að greina þetta, að þetta muni í heildina ekki veikja styrk eða fælingargetu NATO í Evrópu. Við þurfum að sjá útfærsluna á þessu en bæði styrkur og fælingargeta bandalagsins á ekki að veikjast við þetta og enn frekar ólíklegt að þetta muni hafa bein áhrif á Ísland.“ Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna verður 75 ára gamall í vikunni. Þorgerður segir að það hafi sýnt sig að samstarf á sviði varnar- og öryggismála, hvort sem það er við Bandaríkin eða önnur ríki NATO, hafi verið gott. „Það sem ég er að fagna er aukin áhersla bandalagsins á eftirlit og öryggi í Norður-Atlantshafi og á Norðurslóðum og það nýtist og gagnast okkur Íslendingum og okkar öryggi.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bandaríkin Öryggis- og varnarmál Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran NATO Þýskaland Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Sjá meira