Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Samúel Karl Ólason skrifar 4. maí 2026 12:51 Mswati þriðji, konungur Esvatíní, og Lai Ching Te, forseti Taívan. Forsetaembætti Taívan Nýr forseti Taívan hóf opinbera heimsókn sína í Esvatíní í Afríku í morgun með því að segja að Taívan hefði rétt á því að eiga í opinberum samskiptum við önnur ríki. Enginn hefði rétt á að koma í veg fyrir það. Ráðamenn í Taívan segja að Kínverjar hafi reynt að koma í veg fyrir ferðina en Kínverjar hafa fordæmt forsetann taívanska sem „rottu“.
Lai Ching Te, forseti Taívan, sagði Mswati þriðja, konungi Esvatíní, að Taívan, sem heitir formlega Lýðveldið Kína, sé fullvalda þjóð og tilheyri heiminum öllum. Hann sagði að 23 milljónir íbúa Taívana hefðu rétt á því að eiga í samskiptum við heiminn og ekkert annað ríki mætti standa í vegi þess, samkvæmt frétt Reuters. Esvatíní er eitt einungis tólf ríkja heimsins sem eiga í formlegum samskiptum við Taívan. Þangað mætti Lai um helgina til að taka þátt í hátíðarhöldum vegna þess að fjörutíu ár eru liðin frá því Mswati tók við völdum. Deeply grateful to His Majesty King Mswati III, the Queen Mother, & the people of Eswatini for the warm hospitality. From my visit with the Queen Mother to touring the International Convention Centre, every moment reflects the strong friendship between #Taiwan & #Eswatini. pic.twitter.com/tJTUE6hmMj— 賴清德Lai Ching-te (@ChingteLai) May 4, 2026 Stjórnvöld hvorugs landsins höfðu sagt frá því að Lai væri á leið þangað og ferðaðist hann um borð í flugvél í eigu yfirvalda Afríkuríkisins. Forsetinn hafði reynt að fara til Esvatíní áður en hætt var við þá ferð eftir að honum var neitað um heimild til að fljúga yfir þrjú ríki á leiðinni. Taívanar segja það hafa verið gert vegna þrýstings frá Kínverjum. Eftir að ljóst var að Lai hefði ferðast til Afríku líkti talsmaður Taívanskrifstofu utanríkisráðuneytis Kína forsetanum við rottu, sem hefði laumast til Afríku. Talsmaðurinn sagði að Lai væri án efa aðhlátursefni alþjóðasamfélagsins. Taívanar eigi ekki rétt á samskiptum við önnur ríki Eins og frægt er gera Kínverjar tilkall til Taívan og hefur Xi Jinping, forseti Kína, heitið því að sameina Kína og Taívan og gera það með valdi ef svo þarf. Hann er sagður hafa gert það að markmiði sínu að ná völdum á Taívan og hefur hann sagt að það markmið megi ekki enda á höndum komandi kynslóða. Kínverjar segja Taívan ekki eiga rétt á opinberum samskiptum við önnur ríki og hafa beitt sér verulega á alþjóðasviðinu til að koma í veg fyrir slíkt. Sjá einnig: Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Bandaríkin slitu formlegum tengslum við Taívan árið 1979, að kröfu Kínverja, en hafa þrátt fyrir það haldið umfangsmiklum óformlegum tengslum við ríkið og útvega Taívan meðal annars vopn. Bandaríkjamenn hafa um árabil haldið því loðnu hvort þeir myndu beita valdi til að verja Taívan. Herinn undirbúi sig fyrir innrás á næsta ári Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur aukið á áhyggjur fólks um að Bandaríkin myndu ekki koma Taívan til aðstoðar og hefur kallað eftir því að eyríkið verji mun meira til varnarmála. Hann hefur meðal annars stungið upp á að upphæðin fari í tíu prósent af landsframleiðslu, sem er mun meira en Bandaríkin og flest önnur ríki sem eru ekki í stríði gera. Þá meinaði Trump leiðtogum Taívan að ferðast til New York í fyrra af ótta við að það myndi reita Xi til reiði. Sjá einnig: Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Undanfarin ár hafa Kínverjar beitt Taívan sífellt meiri þrýstingi með því markmiði að grafa undan vörnum ríkisins. Herafli Kína hefur sömuleiðis gengist undir mikla nútímavæðingu og uppbyggingu en Xi er sagður hafa skipað forsvarsmönnum hersins að vera tilbúnir fyrir mögulega innrás í Taívan árið 2027. Það ár mun marka aldarafmæli kínverska hersins.
Taívan Kína Esvatíní Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira