Þátttakendur – ekki áhorfendur Dagbjört Höskuldsdóttir skrifar 4. maí 2026 14:00 Vissulega bjóða eldri árin upp á margar áskoranir. Flestar eru þær vegna heilsufars, breyttra heimilisaðstæðna og því miður oft vegna missis og sorgar. Við viljum að þeir sem hafa lagt samfélaginu til allt líf sitt og starf og byggt upp það samfélag sem við nú búum við eigi við lok sinnar starfsævi að geta fengið þjónustu og tækifæri sem miðast við þarfir þeirra og vonir. Framsókn vill að sem allra best sé hlúð að eldra fólki í Reykjavík og það verði unnið samkvæmt áætlun til nokkurra ára. Sú áætlun snúi að uppbyggingu húsnæðis við hæfi, bæði til íbúðar, dagdvala og hjúkrunarheimila. Reykjavíkurborg þarf að vera í samstarfi við ríkið þar sem það á við. Við viljum líka að haldið verði áfram að skipuleggja lífsgæðakjarna þar sem gert er ráð fyrir búsetu eldra fólks og fjölskyldna með börn ásamt þeirri þjónustu sem þarf. Með nægum bílastæðum og möguleikum til útivera og samveru kynslóðanna almennt. Svo eru það líka málin sem gera lífið auðveldara, bæði fyrir eldri og yngri. Hjúkrun og heimaþjónusta eru mikilsverð og brýn nauðsyn að efla og styrkja samþættingu þjónustunnar. Það þarf að koma á stofn sérstökum tengilið sem hægt væri að leita til, svo að ekki þurfi að fara á marga staði. Sem myndu til dæmis hjálpa sambúðarfólki að aðstoða eftir megni maka sinn, án þess að ganga frá sinni heilsu. Framsókn mun beita sér fyrir styrkingu þessara verkefna í þeirri vissu að búseta heima sem lengst, með aðstoð ef þarf, muni vera fjárhagslega hagstætt fyrir borgina um leið og það skilar betri lífsskilyrðum fyrir þá sem þjónustunnar njóta, bæði eldri borgara og öryrkja. Eldra fólk sem vill búa sem lengst heima þegar slæm heilsa bankar upp á þarf að eiga tryggt skjól við hæfi. Við lítum á öll sambúðarform sem jöfn, hvers kyns sem fólk er eða kýs að vera. Við fordæmum að hafður sé uppi áróður á móti samkynhneigð, transfólki eða öðrum þeim sem kjósa að lifa lífi sínu á annan veg en við vorum ef til vill alin upp við – þeir flokkar sem tala niður til þannig sambúðar eða lífstíls eiga ekki erindi í borgarstjórn. Við bendum líka á stóran hóp íbúa borgarinnar sem eru af erlendu bergi brotin. Það þarf að rétta út hönd til þessa fólks þegar það eldist. Mörg hafa lítið bakland hér og þurfa því aukna aðstoð. Þessi hópur má ekki gleymast. Nokkur atriði sem snerta flesta - og ömmur þeirra og afa.. 1. Framsókn í Reykjavík vill bjóða eldra fólki upp á 60 þús kr frístundastyrk sem má nota í hvers konar frístundir, þátttöku í bókaklúbbum, dansnámskeiðum og ýmiskonar fræðslu eða líkamsrækt. 2.Fjölgum einföldum líkamsræktartækjum á grænu svæðunum og bekkjum út um allt. Á Laugarveginum og Laugarásvegi, Sléttuvegi og hvar sem er. 3. Velferðartækni er orð sem er ef til vill mörgum lítt kunnugt. Nú er sú tækni komin í gang víðast hvar, og borgin notar hana talsvert. Því verður að koma á markvissri fræðslu og beinni kennslu á tölvur, spjaldtölvur og síma í öllum samfélagshúsunum og helst víðar. Sú fræðsla hjálpar við að einfalda búsetuna heima og kemur öllum til góða. Það sýndi sig þegar félag eldri borgara í Reykjavík bauð upp á fræðslu í gervigreind, komust færri að en vildu og hafa verið haldin fjölmörg námskeið síðan. 4. Framsókn vill að endurvakið verði Öldungaráð í Reykjavík, en það var lagt niður í þeirri mynd sem það á að vera samkvæmt lögum og verkefni þess lagt undir Mannréttindaráð. Síðan hefur lítið til baráttumála eldra fólks heyrst frá því ráði. Við viljum að breytt verði skipun í Öldungaráðið, og að það sé virkt og fyrir það lögð þau mál sem snerta málaflokka eldra fólks. Við sem þessa grein skrifum höfum fylgst með borgarmálefnum lengi. Við erum þess fullviss að engin breyting verði á rekstri borgarinnar eða þeim málum sem hafa verið vanrækt lengi, ef að Samfylkingunni og hennar áhangendum við stjórn borgarinnar, verði ekki gefið frí. Það er engum hollt að vera of lengi við völd, það hefur sagan sannað. En til að breyting verði á stjórn borgarinnar verður Framsókn að koma sterk inn í borgarstjórn. Þann skamma tíma sem Einar Þorsteinsson var borgarstjóri, tókst honum og borgarstjórnarfulltrúum Framsóknar að ná jöfnuði í rekstri borgarinnar. Við af eldri kynslóðinni í flokknum, treystum okkar frambjóðendum við að leiða nýjan meirihluta og rétta við hallarekstur núverandi meirihluta. Framsókn er hófstilltur miðjuflokkur sem vill viðhalda virðingu og virkni fólks sem er búið að skila sínu til þjóðfélagsins og það er öllum til góðs að þessi hópur geti haldið sjálfstæðri búsetu sem lengst og verið þáttakendur í lífinu – ekki áhorfendur. Dagbjört Höskuldsdóttir, f.h. eldri Framsóknarmanna í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar