Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Samúel Karl Ólason og Hólmfríður Gísladóttir skrifa 6. maí 2026 08:08 Þúsundir erlendra kvenna sem ferðuðust til Sýrlands og giftust vígamönum hryðjuverkasamtakanna hefur um árabil verið haldið með börnum sínum í stórum fangabúðum í Sýrlandi. Heimaríki þeirra hafa ekki viljað taka á móti þeim aftur, í flestum tilfellum. Getty/Abdulmonam Eassa Fjórar konur og níu börn þeirra, sem dvalið hafa í búðum fyrir fjölskyldur erlendra meðlima Íslamska ríkisins í um sjö ár, eru á leið til Ástralíu. Til stendur að handtaka einhverjar kvennanna þegar þær koma aftur til landsins en þaðan ferðuðust þær á árum áður til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og giftast vígamönnum hryðjuverkasamtakanna.
Konurnar og börnin eru hluti af stærri hópi um 34 kvenna og barna sem eru að reyna að komast til Ástralíu. Þegar vígamenn Íslamska ríkisins fóru eins og stormsveipur um stóra hluta Sýrlands og Írak árið 2014 og stofnuðu í kjölfarið kalífadæmi þeirra þar, ferðaðist fjöldi fólks til Sýrlands með því markmiði að ganga til liðs við samtökin. Þar á meðal voru margar konur en þegar þær komu til Sýrlands voru þær yfirleitt fljótt giftar vígamönnum. Þess vegna hafa þær í gegnum árin verið kallaðar „brúðir ISIS“. Tugir þúsunda föst í Sýrlandi um árabil Frá falli kalífadæmisins hafa sýrlenskir Kúrdar haldið þúsundum erlendra vígamanna ISIS og fjölskyldna þeirra í fangabúðum. Í heildina eru þeir taldir hafa haldið um 55 þúsund konum og börnum í nokkrum búðum í Sýrlandi þar sem aðstæður hafa talist verulega slæmar. Kúrdar hafa lengi kvartað yfir því að sitja uppi með erlenda vígamenn og fjölskyldur þeirra. Ríkisstjórnir heimaríkja þeirra hafa ekki viljað taka við þeim og því hafa þessar konur og börnin þeirra setið föst í búðunum um árabil. Þá hafa lengi verið uppi áhyggjur af mikilli öfgavæðingu í búðunum þar sem gildi Íslamska ríkisins eru sögð hafa að miklu leyti haldið velli. Umræddar fjórar konur ferðuðust á sínum tíma frá Ástralíu til Sýrlands og hafa á undanförnum árum haldið til með börnum sínum í búðum sem kallast Al Roj. Þaðan var þeim, og öðrum konum, þó sleppt í síðasta mánuði og hafa þær reynt að komast aftur til Ástralíu með börnum sínum. Fá enga aðstoð frá yfirvöldum í Ástralíu Síðan þeim var sleppt hafa þær haldið til í Damascus í Sýrlandi en yfirvöld þar sögðu nýlega að konunum hefði verið meinaður aðgangur að alþjóðaflugvellinum þar, vegna þess að yfirvöld í Ástralíu hefðu neitað að taka við þeim. Konurnar eru þó allar ástralskir ríkisborgarar en ráðamenn í Ástralíu sögðu frá því í morgun að áðurnefndar fjórar konur og börn þeirra ættu nú bókaða flugferð til Ástralíu. Þar eiga þær að lenda á morgun, fimmtudag, samkvæmt frétt Ríkisútvarps Ástralíu (ABC). Fleiri ástralskar konur eru enn í Sýrlandi og reyna að komast aftur til Ástralíu. Ríkisstjórn landsins hefur þvertekið fyrir að aðstoða þær með einhverjum hætti. ABC hefur eftir Krissi Barrett, æðsta yfirmanni lögreglunnar í Ástralíu, að „einhverjir úr hópnum“ verði handteknir og ákærðir við komuna til landsins á morgun. Börnin muni fá sálfræðilega aðstoð, greiningu og aðstoð við að aðlagast áströlsku samfélagi. Barrett sagði að lögreglan hefði um árabil safnað upplýsingum um þessar fjórar konur og aðrar sem gengu til liðs við ISIS. Þannig hefði staðið til að sannreyna hvort þær hefðu brotið gegn lögum Ástralíu og hvort hægt væri að sanna það. Hér að neðan má sjá nýlega sjónvarpsfrétt ABC um konurnar og börnin. Oft erfitt að sanna lögbrot Í mörgum tilfellum þar sem erlendir vígamenn ISIS hafa snúið aftur til síns heima hefur reynst erfitt að sakfella þá fyrir dómstólum, þar sem lítið hefur verið um raunveruleg sönnunargögn um að þeir hafi gengið til liðs við hryðjuverkasamtökin. Í flestum ríkjum var ekki ólöglegt að ferðast til Sýrlands, ef yfirhöfuð var hægt að sanna að viðkomandi hefði farið til Sýrlands. Þetta er stór ástæða þess að sýrlenskir Kúrdar hafa setið uppi með þetta fólk í gegnum árin. Í Ástralíu var það gert ólöglegt að ferðast til Sýrlands á þessum tíma. Þar hafa lögregluþjónar einnig reynt að afla upplýsinga um það hvort konurnar og aðrar hafi brotið alþjóðalög eða brotið gegn mannréttindalögum eins og til dæmis með þrælahaldi, sem var algengt í kalífadæmi ISIS á árum áður. Einhverjir þingmenn í Ástralíu hafa kallað eftir því að konurnar verði sviptar vegabréfum sínum og þeim meinað að snúa aftur á grundvelli þjóðaröryggis. Árásin á Bondi-ströndinni í Ástralíu í fyrra er talið hafa ýtt undir þetta sjónarhorn hjá mörgum Áströlum. Feðgarnir sem gerðu þá mannskæðu árás eru sagðir hafa fengið innblástur frá Íslamska ríkinu. Sjá einnig: „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Það hefur verið gert annarsstaðar í heiminum, eins og í Bretlandi í tilfelli Shamimu Begum, sem var fimmtán ára gömul þegar hún og tvær vinkonur hennar fóru til Sýrlands. Vinkonurnar eru látnar en hún er enn í Al Roj-búðunum eftir að hafa verið svipt breskum ríkisborgararétti.
Sýrland Ástralía Hryðjuverkastarfsemi Erlend sakamál Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Sjá meira