„Svo hringdi kærastan mín og ég er búinn að vera hér síðan“ Sindri Sverrisson skrifar 6. maí 2026 08:01 Kennie Chopart er leikjahæsti erlendi leikmaður í sögu efstu deildar hér á landi og búinn að spila hér mun lengur en hann bjóst við í fyrstu. vísir/Lýður Daninn Kennie Chopart flutti til Íslands fyrir fjórtán árum. Í dag er hann einn reynslumesti leikmaður Bestu deildarinnar og fer fyrir Framliðinu sem fyrirliði liðsins.
Kennie kom fyrst til Stjörnunnar árið 2012 og hefur svo einnig leikið með Fjölni, KR og nú Fram, eftir að hafa elt þjálfara sinn Rúnar Kristinsson úr Vesturbænum og upp í Úlfarsárdal. Þessi leikjahæsti erlendi leikmaður í sögu deildarinnar hefur farið sérstaklega vel af stað á þessari leiktíð og skorað þrjú mörk í fyrstu fimm leikjunum. En bjóst hann við að endast svona lengi hérna? „Alls ekki. Ég held ég hafi verið á leiðinni heim, áður en ég fór í KR. Svo hringdi kærastan mín og ég er búinn að vera hérna síðan,“ sagði Kennie léttur en hann á íslenska kærustu og saman eiga þau tvö börn. Viðtal Stefáns Árna Pálssonar við hann má sjá í spilaranum hér að neðan. Kennie er ekkert að hugsa um að leggja skóna á hilluna á næstunni og ætlar að halda áfram vinnunni við að koma Fram í fremstu röð á nýjan leik. „Ég nýt þess að spila fótbolta. Ég verð 36 ára eftir mánuð en samt nýt ég þess að fara á æfingar og að fara í leiki. Svo eru krakkarnir svo spenntir núna líka að horfa á fótbolta. Ég get alveg spilað fimm ár í viðbót. Við spilum svo stutt tímabil, bara sex mánuði, og þá áttu sex mánuði til að gera það sem þú vilt og hafa gaman. En á tímabilinu snýst allt um fótbolta,“ sagði Kennie sem eftir sigurinn frábæra gegn FH í síðustu umferð er með Fram í 4. sæti deildarinnar, með tíu stig úr fyrstu fimm umferðunum. „Við getum alveg endað í topp sex. Við erum komnir með svo góðan hóp, stærri hóp en í fyrra,“ sagði Kennie en nánar er rætt við hann í viðtalinu hér að ofan. Næsti leikur Kennie og félaga er hörkuleikur við Val á Lambhagavellinum á föstudagskvöld, klukkan 19:15. Fjórir leikir verða þá á sama tíma og fylgst með þeim öllum í Subway-messunni á Sýn Sport Ísland.
Besta deild karla Fram Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Sjá meira