Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Lovísa Arnardóttir skrifar 7. maí 2026 14:05 Myndin er tekin við hringtorg á Selfossi og sést á henni, þó hún sé dökk, hvernig ekið er í gegnum hringtorgið. Landsvirkjun Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri vindmyllugarðs Landsvirkjunar við Vaðölduver, segir hafa gengið mjög vel að flytja hluta vindmylla í Vaðölduver í nótt. Lögregla segir beygjur og hringtorg mestu áskorun en flutningarnir hafi gengið vel í nótt.
Um eina mestu þungaflutninga vegakerfisins er að ræða. Hver vindmylluspaði vegur um tuttugu tonn. Hlutirnir sem þarf að flytja vega á milli tuttugu og 60 tonn. Hlutirnir sem voru fluttir í nótt vógu um 60 tonn alls. Venjulegur fólksbíll er til samanburðar um eitt tonn. „Jómfrúarferðin gekk mjög vel, lögreglan stóð sig vel að stjórna og stýra lestinni sem lagði af stað frá Þorlákshöfn rétt um miðnætti og við vorum komin örugglega upp í Vaðöldu rétt rúmlega fimm,“ segir hann og að það sé innan þeirra áætlana sem Landsvirkjun gerði um ferðina. Sigurgeir segir litla umferð hafa verið á svæðinu og þeir fáu sem hafi lent í að bíða hafi sýnt þolinmæði. Hann segir enga þörf á að skoða neina vegi eða beygjur eða neitt slíkt, allt hafi gengið vel. „Við erum mjög ánægð með hvernig gekk.“ Fram kom í frétt í gær að flutningarnir taka um sjö til tíu vikur. Þrjá daga þarf fyrir flutninga á hverri vindmyllu og alls þarf að flytja 14 vindmyllur í sumar. Svo aftur sama magn næsta vor. Nú eigi eftir að fara í 41 ferð sem dreifist á næstu sex til tíu vikur. „Næsta ferð er skipulögð í kvöld,“ segir Sigurgeir. Vndmyllulestin á leið í nótt. Landsvirkjun Í hverri ferð eru fluttir um fimm spaðar en hver þeirra er um 68 metrar á lengd og eru bílarnir því um 80 metrar á lengd. Til samanburðar er Hallgrímskirkjuturn um 74,5 metrar á hæð. Á vef Landsvirkjunar er hægt að finna ýmsar upplýsingar um flutningana. Þar kemur til dæmis fram að meðalhraði flutningslestar er áætlaður um 30 km/klst sem þýðir að ferðatími frá Þorlákshöfn í Vaðölduver verður yfirleitt 4–6 klukkustundir. Hver flutningalest getur orðið allt að 250 metra löng. Flutningsleiðin er um 130 kílómetra löng og er ekið frá Þorlákshöfn um Nesbraut og Laxabraut, eftir Suðurstrandarvegi (427), Eyrarbakkavegi (34), Votmúlavegi (310), Gaulverjabæjarvegi (33), Suðurlandsvegi (1) og Landvegi (26). Ferðin sem er farin frá Þorlákshöfn er alls um 130 kílómetrar. Landsvirkjun Vindmyllurnar eru alls 28 og samanstanda af þrettán hlutum. Í kynningarmyndbandi frá Landsvirkjun kemur fram að vegirnir hafi verið yfirfarnir vegna þessara þungaflutninga og að allar vegabætur hafi verið gerðar í samstarfi við Vegagerðina. Lögreglan á Suðurlandi stýrir flutningunum. Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, segir þessa fyrstu ferð hafa gengið afar vel. Ein vindmylluspaði er um tuttugu tonn. Kranarnir vinstra megin eru notaðir til að taka hlutina af bílunum og raða hlutunum í þeirri röð sem þarf svo að reisa þá á áfangastað.Landsvirkjun „Þetta gekk mjög vel fyrir sig, þetta eru mjög krefjandi flutningar og að mörgu leyti hefðbundnir fyrir lögregluna en það sem er örðuvísi fyrir þessa flutninga er að þeir eru margir, þungir og svo eru vagnarnir langir,“ segir hún og að mesta áskorunin sé í beygjum og á hringtorgum. Ökumönnum er bent á að halda góðri fjarlægð og reyna alls ekki að taka fram úr flutningalestinni. Mæti þeir lestinni er best að víkja til hliðar og bíða. „Með svona hefðbundna flutninga þá förum við á tímum þar sem er minni umferð og biðlum til þeirra sem eru á ferðinni að sýna tillitssemi og þolinmæði,“ segir Íris Edda. Hún segir lögregluna hafa verið vel undirbúna í gær. „Við vorum við öllu búin, þetta var smá frumraun hvað þetta varðar. Þetta eru margar ferðir og umfangið í kringum þetta og lengdin á spöðunum.“ Eins og fram kom standa flutningarnir í nokkrar vikur. Íris Edda segir það þó ekki auka álagið of mikið á lögregluna. Það þurfi að bæta við mannskap á vaktina en það flútti þó nokkuð vel með vaktinni sem er. Einhverjir lögreglumenn séu þó alltaf eyrnamerktir í þetta verkefni á vaktinni.
Orkumál Vindorka Vindorkuver við Vaðöldu Ölfus Árborg Landsvirkjun Tengdar fréttir Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. 25. mars 2026 22:10 Framkvæmdir auka losun en aðeins tímabundið Loftslagsbókhald Landsvirkjunar sýnir að losun vegna orkuvinnslu fyrirtækisins var 3,1 gramm koldíoxíðsígilda á hverja unna kílówattstund á árinu 2025. Losunin er með því lægsta sem þekkist innan orkugeirans. 20. mars 2026 10:00 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira
Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. 25. mars 2026 22:10
Framkvæmdir auka losun en aðeins tímabundið Loftslagsbókhald Landsvirkjunar sýnir að losun vegna orkuvinnslu fyrirtækisins var 3,1 gramm koldíoxíðsígilda á hverja unna kílówattstund á árinu 2025. Losunin er með því lægsta sem þekkist innan orkugeirans. 20. mars 2026 10:00