Hópur netþrjóta hótar gagnaleka Freyja Þórisdóttir skrifar 7. maí 2026 23:59 Þetta er önnur árás netþrjótanna síðasta mánuðinn en hún hittir einstaklega illa á enda eru nemendur um allan heim á kafi í prófatörn. Vísir/aðsend Canvas-námsumsjónarkerfið liggur niðri á ný og samkvæmt erlendum miðlum hefur hópur netþrjóta sem kallast ShinyHunters lýst yfir ábyrgð á netárásunum. Nemendur Háskóla Íslands sem voru inni á síðunni þegar hún var tekin niður á ný segjast hafa fengið upp á skjáinn skilaboð frá netþrjótunum. Frá þessu er meðal annars greint í frétt bandaríska fjölmiðilsins CNN en svo virðist sem netþrjótahópurinn hafi verið að senda skólunum skilaboð. „Já, ég var að taka kaflapróf á Canvas og fer á milli flipa, svo þegar ég fer inn á Canvas aftur þá koma upp þessi skilaboð,“ segir María Mist Þórs Sigursteinsdóttir nemandi í Keili. Hún bætir við að það hafi birst listi yfir skóla sem mættu sæta netárásum og þar á meðal var Keilir, Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands og Menntaskólinn á Egilsstöðum. Í gær, þann 6. maí, fengu nemendur Háskóla Íslands tölvupóst frá skólanum þar sem segir að ekki liggi fyrir vísbendingar um að viðkvæm gögn hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Í framhaldi af tilkynningu Háskóla Íslands í gær um alvarlegt öryggisatvik sem varð hjá þjónustuaðila Canvas-námsumsjónarkerfisins, Instructure, viljum við taka eftirfarandi fram: Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur óviðkomandi aðili komist ólöglega yfir hluta gagna innan Canvas-kerfisins sem tengjast notendum í fjölda háskóla um allan heim, þar á meðal Háskóla Íslands. Gögnin kunna að innihalda netföng og skilaboð milli notenda Canvas. Við áréttum að Canvas geymir hvorki lykilorð né kennitölur notenda Háskóla Íslands og ekki liggja fyrir vísbendingar um að fjárhagsupplýsingar eða önnur viðkvæm gögn hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Við hvetjum notendur Canvas til að sýna aðgát gagnvart óvenjulegum tölvupóstum, skilaboðum eða beiðnum um upplýsingar sem kunna að tengjast málinu. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og verður áfram fylgst náið með framvindu þess. Háskóli Íslands mun upplýsa notendur eftir því sem nýjar upplýsingar berast eða tilefni verður til frekari aðgerða. Rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld var send út tilkynning frá upplýsingaöryggisstjóra Háskóla Íslands þar sem fram kom að Instructure ynni að því að rannsaka málið og koma kerfinu aftur í eðlilegt horf. „Við fylgjumst náið með stöðunni og munum senda frekari upplýsingar þegar þær liggja fyrir,“ stóð þar og einnig var beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kynni að valda. Mörg þúsund skólar urðu fyrir árásunum Canvas er með yfir 30 milljónir virkra notenda á heimsvísu, að því er móðurfyrirtækið Instructure heldur fram á vefsíðu sinni, og þjónustar yfir 8.000 stofnanir. Margir þessara nemenda eru á kafi í annasömu vorprófatímabili. Um fimm þúsund skólar og stofnanir voru útlistuð í skilaboðum ShinyHunters en þar stóð einnig að gagnalekinn væri til kominn vegna þess að „fórnarlambið greiddi ekki lausnargjald eða sýndi samstarfsvilja og fór ekki að kröfum ShinyHunters-hópsins“. Ekki í fyrsta sinn Þetta er annað gagnabrotið í þessum mánuði sem bitnar á skólum og háskólum. Tölvuþrjótahópurinn ShinyHunters hefur lýst yfir ábyrgð á báðum árásunum en líkt og fyrr segir krafðist hópurinn þess að Instructure setti sig í samband við sig til að koma í veg fyrir frekari gagnaleka. Ekki er ljóst hvort að krafist sé gjalds. „ShinyHunters hefur brotist inn hjá Instructure (aftur),“ stóð í viðvörun á aðgangi nemanda við University of Washington um hádegisbil að staðartíma, en þetta kemur jafnframt fram í umfjöllun CNN. „Í stað þess að hafa samband við okkur til að leysa málið hunsuðu þeir okkur og gerðu einhverjar „öryggisuppfærslur“,“ stóð þar einnig. Instructure sagði á vefsíðu sinni seint á fimmtudagseftirmiðdegi að Canvas væri „í viðhaldsham“ og bætti við að málið væri í rannsókn. Fyrirtækið gaf þó til kynna að notendanöfnum, netföngum og nemendanúmerum hefði verið lekið. „Instructure hefur enn frest til loka dags 12. maí 2026 til að hafa samband við okkur,“ stóð í skilaboðunum á fimmtudag. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér. Skóla- og menntamál Netglæpir Háskólar Tækni Hagsmunir stúdenta Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Erlent „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Spáð í spilin fyrir komandi kosningar og rætt við vindmylluflutningamenn Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Bein útsending: Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Sjá meira
Frá þessu er meðal annars greint í frétt bandaríska fjölmiðilsins CNN en svo virðist sem netþrjótahópurinn hafi verið að senda skólunum skilaboð. „Já, ég var að taka kaflapróf á Canvas og fer á milli flipa, svo þegar ég fer inn á Canvas aftur þá koma upp þessi skilaboð,“ segir María Mist Þórs Sigursteinsdóttir nemandi í Keili. Hún bætir við að það hafi birst listi yfir skóla sem mættu sæta netárásum og þar á meðal var Keilir, Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands og Menntaskólinn á Egilsstöðum. Í gær, þann 6. maí, fengu nemendur Háskóla Íslands tölvupóst frá skólanum þar sem segir að ekki liggi fyrir vísbendingar um að viðkvæm gögn hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Í framhaldi af tilkynningu Háskóla Íslands í gær um alvarlegt öryggisatvik sem varð hjá þjónustuaðila Canvas-námsumsjónarkerfisins, Instructure, viljum við taka eftirfarandi fram: Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur óviðkomandi aðili komist ólöglega yfir hluta gagna innan Canvas-kerfisins sem tengjast notendum í fjölda háskóla um allan heim, þar á meðal Háskóla Íslands. Gögnin kunna að innihalda netföng og skilaboð milli notenda Canvas. Við áréttum að Canvas geymir hvorki lykilorð né kennitölur notenda Háskóla Íslands og ekki liggja fyrir vísbendingar um að fjárhagsupplýsingar eða önnur viðkvæm gögn hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Við hvetjum notendur Canvas til að sýna aðgát gagnvart óvenjulegum tölvupóstum, skilaboðum eða beiðnum um upplýsingar sem kunna að tengjast málinu. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og verður áfram fylgst náið með framvindu þess. Háskóli Íslands mun upplýsa notendur eftir því sem nýjar upplýsingar berast eða tilefni verður til frekari aðgerða. Rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld var send út tilkynning frá upplýsingaöryggisstjóra Háskóla Íslands þar sem fram kom að Instructure ynni að því að rannsaka málið og koma kerfinu aftur í eðlilegt horf. „Við fylgjumst náið með stöðunni og munum senda frekari upplýsingar þegar þær liggja fyrir,“ stóð þar og einnig var beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kynni að valda. Mörg þúsund skólar urðu fyrir árásunum Canvas er með yfir 30 milljónir virkra notenda á heimsvísu, að því er móðurfyrirtækið Instructure heldur fram á vefsíðu sinni, og þjónustar yfir 8.000 stofnanir. Margir þessara nemenda eru á kafi í annasömu vorprófatímabili. Um fimm þúsund skólar og stofnanir voru útlistuð í skilaboðum ShinyHunters en þar stóð einnig að gagnalekinn væri til kominn vegna þess að „fórnarlambið greiddi ekki lausnargjald eða sýndi samstarfsvilja og fór ekki að kröfum ShinyHunters-hópsins“. Ekki í fyrsta sinn Þetta er annað gagnabrotið í þessum mánuði sem bitnar á skólum og háskólum. Tölvuþrjótahópurinn ShinyHunters hefur lýst yfir ábyrgð á báðum árásunum en líkt og fyrr segir krafðist hópurinn þess að Instructure setti sig í samband við sig til að koma í veg fyrir frekari gagnaleka. Ekki er ljóst hvort að krafist sé gjalds. „ShinyHunters hefur brotist inn hjá Instructure (aftur),“ stóð í viðvörun á aðgangi nemanda við University of Washington um hádegisbil að staðartíma, en þetta kemur jafnframt fram í umfjöllun CNN. „Í stað þess að hafa samband við okkur til að leysa málið hunsuðu þeir okkur og gerðu einhverjar „öryggisuppfærslur“,“ stóð þar einnig. Instructure sagði á vefsíðu sinni seint á fimmtudagseftirmiðdegi að Canvas væri „í viðhaldsham“ og bætti við að málið væri í rannsókn. Fyrirtækið gaf þó til kynna að notendanöfnum, netföngum og nemendanúmerum hefði verið lekið. „Instructure hefur enn frest til loka dags 12. maí 2026 til að hafa samband við okkur,“ stóð í skilaboðunum á fimmtudag. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Í framhaldi af tilkynningu Háskóla Íslands í gær um alvarlegt öryggisatvik sem varð hjá þjónustuaðila Canvas-námsumsjónarkerfisins, Instructure, viljum við taka eftirfarandi fram: Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur óviðkomandi aðili komist ólöglega yfir hluta gagna innan Canvas-kerfisins sem tengjast notendum í fjölda háskóla um allan heim, þar á meðal Háskóla Íslands. Gögnin kunna að innihalda netföng og skilaboð milli notenda Canvas. Við áréttum að Canvas geymir hvorki lykilorð né kennitölur notenda Háskóla Íslands og ekki liggja fyrir vísbendingar um að fjárhagsupplýsingar eða önnur viðkvæm gögn hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Við hvetjum notendur Canvas til að sýna aðgát gagnvart óvenjulegum tölvupóstum, skilaboðum eða beiðnum um upplýsingar sem kunna að tengjast málinu. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og verður áfram fylgst náið með framvindu þess. Háskóli Íslands mun upplýsa notendur eftir því sem nýjar upplýsingar berast eða tilefni verður til frekari aðgerða.
Skóla- og menntamál Netglæpir Háskólar Tækni Hagsmunir stúdenta Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Erlent „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Spáð í spilin fyrir komandi kosningar og rætt við vindmylluflutningamenn Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Bein útsending: Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Sjá meira