Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. maí 2026 10:27 Töluverðar sviptingar hafa orðið í leikskólum á kjörtímabilinu miðað við samantektina. Vísir/Anton Brink Foreldrar leikskólabarna standa víða frammi fyrir styttri opnunartíma, fleiri lokunardögum, flóknari gjaldskrám og hærri kostnaði fyrir fulla vistun. Þannig hafa leikskólagjöld fyrir fulla vistun, átta til átta og hálfan tíma á dag, víða hækkað verulega á kjörtímabilinu, um allt að 85 prósent.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirliti ASÍ og BSRB um þróun leikskólaþjónustu á kjörtímabilinu 2022 til 2026. Segir í tilkynningu að samantekin sýni að víða hafi orðið breytingar sem geri daglegt líf barnafjölskyldna flóknara, kostnaðarsamara og síður fyrirsjáanlegt. Leikskólagjöld síður fyrirsjáanleg „Opnunartími leikskóla og hámarksdvalartími barna hefur víða verið skertur, meðal annars með styttri opnunartíma á föstudögum og 40 klukkustunda hámarksvistun á viku, eða jafnvel skemmri vistun fyrir yngstu börnin. Slíkar breytingar geta haft veruleg áhrif á möguleika foreldra til að samræma atvinnu og fjölskyldulíf,“ segir í tilkynningunni. Þá hafi afsláttarkerfi einnig breyst. Í sumum sveitarfélögum hafi afslættir fyrir tiltekna hópa, svo sem námsfólk, einstæða foreldra og fólk með örorku verið felldir niður og tekjutengd gjöld tekin upp í staðinn svo að stór hluti foreldra á vinnumarkaði greiði hærri gjöld en áður. „Skráningardagar, sem áður þekktust ekki í þessum mæli, hafa verið teknir upp í flestum sveitarfélögum. Þeir eru víða 5–20 dagar á ári og gjald fyrir hvern nýttan dag er almennt 2.500–5.000 krónur. Leikskólagjöld eru síður fyrirsjáanleg en áður, þar sem kostnaður ræðst í auknum mæli af nýtingu þjónustu á einstökum dögum og breytingum á tekjum foreldra.“ Flóknari gjaldskrár Þá kemur fram að leikskólar eru lokaðir fleiri daga en áður. Sumarlokun, starfsdagar, skráningardagar og lokunardagar á bilinu 30-46 á ári. Til samanburðar eigi launafólk almennt 24 til 30 orlofsdaga á ári. „Gjaldskrár hafa breyst mikið og orðið flóknari. Leikskólagjöld fyrir fulla vistun, 8–8,5 tíma á dag, hafa víða hækkað verulega á kjörtímabilinu, um allt að 85 prósent,“ segir í samantektinni. „Í stærstu sveitarfélögum landsins kostar 8 tíma vistun víða um 50.000 krónur á mánuði og 8,5 tíma vistun allt að 68.000 krónur. Gjöld hafa verið felld niður eða lækkuð fyrir skerta vistun en hækkað verulega fyrir fulla vistun. Þetta leiðir til þess að fullvinnandi foreldrar niðurgreiða leikskólagjöld þeirra sem geta nýtt sér skerta vistun.“
Leikskólar Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Sjá meira